Kaffikvörn
1870 - 1881

In preservation at
Akranes Folk Museum
Hinn 31. janúar 1881 strandaði póstskipið Phönix í aftaveðri á skerjum framundan skógarnesi í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Skipið var að koma til landsins frá Kaupmannahöfn í miðvetrarför sinni. Eyðilagðist það með öllu en skipverjar komust í land mjög þrekaðir og nær aðframkomnir af vosbúð og kulda. skipsbrotsmönnunum var skift niður á bæi í Miklaholtshreppi til aðhlynningar og hjúkrunar. Í Miklaholti var þá sóknarprestur séra Geir Bachmann ( d. 1886). Sonur hans var Stefán Bachman var kvæntur Súsönnu Maríu og bjuggu þau á prestssetrinu. Einhverjir hinna hröktu manna fengu skjól og hjúkrun í Miklaholti, þ.á.m. matsveinninn af skipinu. Umrædd kaffikvörn var skipskvörn póstskipsins og rak hana á land með öðrum varningi úr skipinu. Matsveininn gaf Súönnu kvörnina í þakklætisskyni fyrir sig en hann lést stuttu síðar af völdum kalsára. Súsanna og maður hennar, Stefán, fluttust að vestan til Akraness þetta saman ár ( 1881) og bjuggu þau á Nýjabæ. Stefán var hagleiksmaður og stundaði smíðar. Hann var einn þeirra sem fórust með Pétri Hoffmann í mannskaðaveðrinu mikla 07.01.1884. Seinni maður Súönnu var Hallgrímur Tómasson útvegsbóndi og formaður á Bjargi á Akranesi ( f. 1862, d.1952). Þau bjuggu á Grímsstöðum á Akranesi. Súanna átti og notaði kvörnina meðan lifði ( d. 1918). Eftir hana eignaðist kvörnina sonur hennar, Stefán Bachmann sem lengi hefur verið búsettur í Hafnarfirði og gaf hann safninu kvörnina 04.03.1965.
-Heimild frá Stefáni Bachmann-
Main information
Dating
1870 - 1881
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1959-1398-1
Dimensions
15 x 15 x 12.5 cm
Lengd: 15 Breidd: 15 Hæð: 12.5 cm
Place
Staður: Grímsstaðir, Akraneskaupstaður
Record type
Collection
Undirskrá: Almenn munaskrá
Keywords
Keyword: Kaffikvörn
Place of origin
64°7'3.3"N 21°48'38.9"W
