Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (Age not defined)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-41
Questions / Answers
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Ég átti fullt af ömmum 2 blóðskyldar og eina sem ól móður mína upp vegna barnafjölda. Þetta voru allt miklar heiðusrskonur og svo duglegar að maður hugsar oft til þeirra ef maður er eitthvað að tala um erfiðleika....í dag hafa allir það gott miðað við þá tíma sem þær lifðu á. Tvær þeirra voru fæddar 1899 og stjúp amma mín 1879. ég kynntist þeim öllum vel. Ég heiti í höfuðið á föður ömmu mnni og var vinátta okkar órjúfanleg allt þar til hún dó 86 ár. Ég fór til hanar bæði sem smá krakki til að taka upp kartöflur eða leika í fjörunni og síðar til að hjálpa henni sem eldri konu sem þurfti hjálp við húsverk og þvotta.
Amma mín í sveitinni átti hinsvega 11 börn og því var ávallt mikill barnafjöldi á bænum en hún var snillingur í að búa til góðan mat og eiga nóg fyrir alla. Þarna var gestkvæmt og þurfti oft auka bita. Fullur kjallari af súrmat í mjög stórum tunnum og saltkjöt í tunnum og allskonar matur. Mjólk var skilin og strokkað. Margt skemmtilegt gerðist í þessari sveit sem maður lærði af fyrir lífstíð.

Questionnaire
Record type
Keywords