Main information
Gender / Year of Submittee
Kona (1966)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-38
Questions / Answers
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Amma mín er kærleiksrík, afar vel gefin, réttsýn og skynsöm. Þar sem hún ólst upp, var útsýnið út á Eyjafjallajökul og fannst henni oft geysi fagurt að koma út og horfa. Það var ekki rafmagn og hún gleymir því aldrei þegar það kom, hvað margt varð betra. Amma deildi rúmi fystu árin hjá gamallri konu og naut þess, svo var hún færð þegar hún stækkaði í rúm með systur sinni. Hún saknaði alltaf gömlu konunnar í rúminu. Kamar var í garðinum og erfitt að fara þar á næturnar svo þær systurnar fylgdu hvor annarri ef þær þurftu að fara. Amma man eftir svona dulum sem voru notaðar í stað dömubinda og svo var það þannig að það hékk alltaf á snúrunni einhver svona dula til þerris enda margar konur á bænum. Svo geymdu þær skítugu dulurnar í einhverjum skjóðum þar til það var þvegið. Mamma hennar var frábær saumakona svo hún man að hún var alltaf í fallegum fötum og hreinum. Til dæmis var saumaður feikilega fallegu hvítur fermingarkjóll á stúlkuna. Amma mín var fengin til að kenna 16 ára gömul á bæ rétt hjá, tveimur þroskahefðum stúlkum og þar las hún fólki til skemmtunar alla Passíusálmanna. Ömmu baust ungri, vegna námshæfileika, að fara til náms inn í Hafnarfjörð í Flensborg. Síðan þá þótti henni alltaf gaman að fara þangað í bíltúr þegar komið var í bæinn. Amma ól sín börn á heimilinu og man hvað var erfitt að ná upp þrótti eftir einhverja vikna legu. Það tíðkaðist þá, að liggja lengi vel eftir barnsburð. Amma eignaðist þrjú börn og yngsta barnið var talsvert lasið. Læknir kom því oft í bæinn og þau urðu góðir vinir. Amma man hvað henni sárnaði þegar fólkið í kring fór að núa saman nefjum um að þau væru að halda við hvort annað. Amma hefur búið í sama húsinu frá því hún fór að búa og býr enn, í dag 91 árs gömul. Best er að leita til hennar ef manni vantar fallegt ljóð til að krydda falleg kort, samúðarkort eða heillakveðjukort. Amma er einstök kona enda elskuð og virt af fólki á öllum aldri. Ég er feikilega stolf af henni og þykir undur vænt um hana. Hún prjónar enn, eldar ofan í sig og sér um húsið að mestu og les mikið og kann mörg ljóð utanbókar.
Frásögn með stuðningi minnisatriða:
Ömmu mína missti ég þegar ég var 12 ára. Ég man ég skildi ekki af hverju fólk var að spjalla og jafnvel hlæja í erfisdrykkjunni. Ég sá ekki fyrir mér að hægt væri að hlæja eftir hennar daga. Hún var tilfinningarík og elskuleg. Hún var mjög góð í handbolta og spilaði og fékk verðlaun. Amma mín leyfði okkur stundum að hlaupa út í sjoppu að kaupa Spur eða Míranda. Best var að alltaf þegar ég kom, var hún í dyrunum og tók á móti mér með opinn faðminn. Ég elskaði hana út af lífinu og hún lét margt eftir eftir mér. Amma missti eiginmann sinn ung frá 2ja ára gömlum syni og eins vikna syni. Það hefur verið ólýsanlegt áfall. Hún eignaðist fjóra syni og einn þeirra átti við alvarleg geðræn vandamál að stríða á fullorðinsárum. Ömmur eru gjöf frá guði og eru táknmynd ástar og kærleika. Þannig voru báðar ömmur mínar.

Questionnaire
Record type
Keywords