Endurminning

09.03.2015
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1964)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-34
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Questions / Answers
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Ömmur mínar báðar dóu þegar ég var lítil stelpa. Eina minning mín um föðurömmu er sú að við bróðir minn fórum upp á loft, þar sem hún bjó og var að mig minnir rúmliggjandi, en við bjuggum á hæðinni í húsi við Sóleyjargötu sem afi byggði þar sem pabbi ólst upp. Ég hef verið um 3 ára og bróðir minn ári eldri. Hún las fyrir okkur... úr Andrésblöðum að mig minnir. Minningar um móðurömmu tengjast kjólum og perlufestum og franskbrauði með smjöri og sykri sem við bróðir minn fengum í kaffitímanum í eldhúsinu á Hagamel. Ég var 6 ára þegar hún lést. Móðurömmusystur mínar bjuggu við Laugarveg, þar sem sú eldri (ásamt bróður þeirra) rak verslun. Sat teinrétt og beið eftir viðskiptavinum, smávaxin og örmjó með gleraugu. Hin var kennari og gift fiðluleikara - þau voru barnlaus og höfðu búið einhver ár í Danmörku... sendu okkur krakkana stundum út í sjoppu að kaupa pilsner og sódavatn og þau reyktu heil ósköp af camel sígarettum.... Bíllinn þeirra var alltaf með sérkennilega lykt, sem hefur líklega verið reykingalykt. Við fengum stundum tesopa hjá þeim í kaffitímanum... sett vel af strásykri í bollann. Lásu fyrir okkur mörg ævintýri úr 1001 nótt.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Endurminning
Keyword:
Amma