Endurminning

09.03.2015
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1997)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-33
Place
Núverandi sveitarfélag: Bolungarvíkurkaupstaður, Bolungarvíkurkaupstaður
Questions / Answers
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Föður amma mín var merkileg kona. Hún eignaðist 15 börn sem öll náðu fullorðins aldri. Hún var hörkudugleg og fögur. Henni var oft lýst af mönnum sem álfkonu með sítt dökkt hár bundið upp í fléttur og klædd í upphlut með skotthúfu á kollinum. Hún sá um heimilið, búið & börnin 15. Var oft sagt um hana að hún gæti gert allt í einu. Með ungabarn í fanginu, hrærandi í pottinum, lesandi bók, með prjónana tilbúna við hvert tækifæri sem gafst og nokkur smá börn hangandi í pilsfaldinum. Hun var rólindis manneskja og þolinmóð með afbryggðum. Heimakær var hún, og beið fólk eftir að sjá konuna frá Hanhóli, (bærinn sem hún bjó á) koma í búðir út í Bolungarvík á Þorláksmessu. Lífsglöð var hún og var af mörgun talin fegurst kvenna við djúp. Móðir amma mín, var mikill kvennskörungur. Hún var kennari. Og mikil Framsóknarkona! Ég man rosa takmarkað eftir henni, en ég man þó eftir grænu fingrum hennar en þegar ég var einungis smá stelpa fór hún með mig út í garð og kenndi mér að meta gróður. Garðurinn hennar var ætíð líflegur og mátti þar sjá blóm og rósir í öllum heimsins litum.
Frásögn með stuðningi minnisatriða:
Þorsteina Kristjana Jónsdóttir. 1914. Fæðingardagur: dagur íslenskrar tungu 16. nóvember. Rólindis kona, með eindæmum þolinmóð og hörkudugleg. Eignaðist 15 börn og afkomendur hennar telja nú um eða yfir 100. Fegurst kvenna inn við djúp og oft líkt við álfkonu hún hafði mikið hár sem hun batt upp í fléttur, og klæddist upphlut. Heimakær, og beið fólk eftir að sjá hana fara í bæjinn á Þorláksmessu til að geta fylgst með þessari "álfkonu". Gerði allt í einu, las, prjónaði og hrærði í pottinum, talaði við gestina og hafi nokkur smá börn hangandi í pilsfaldinum. Stórmerkileg kona. Hún er fyrir mér svoldið tákn mynd Íslands. Hún ólst upp í torfbæ inn í Djúpi þar sem örfáir búa nú, hún flutti með börnin sýn 7, manninum sýnum og kasólétt af 8 unda barninu á bát yfir djúp inn í Bolungarvík. Þar sem fjölskyldan hóf nýtt líf á nýjum stað fjarri sýnum heima högum. Hún náði 90 árum, en hún lést árið 2004.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Endurminning
Keyword:
Amma