Kambur, f. hár

1100 - 1300
In preservation at
National Museum of Iceland
Beinkambur, væntanlega frá 12. eða 13. öld. Faðir gefanda, Alexander Einbjörnsson, fann kambinn í kringum 1936 á Stakkhamarsnesi á Snæfellsnesi. Kamburinn er ljós og grænleitur. Tennurnar eru allmikið brotnar, en þær eru grófari á öðrum helmingi kambsins en hinum. Kamburinn er nokkuð sérstakur að gerð, með hringskreyti á öðrum enda og á miðjukafla, beggja vegna. Í hinum enda er gat, til að hengja kambinn í snúru. Kambhlutarnir (kinnarnar) hafa verið festir saman með koparnöglum, sem mynda um leið skreytingu eftir endilöngum bakkanum. Græni liturinn á kambnum stafar af tæringu koparsins. Þegar kamburinn fannst hefur hann, að því er viriðist, verið í 12 hlutum. Síðar hefur finnandinn límt brotin saman og ennfremur fest kambinn á viðarfjöl (bæði límt hann og neglt). Kamburinn er 16 cm langur og mest um 2,6 cm breiður. Hugsanlega hefur hann verið örlítið lengri í upphafi. Gripurinn er í stöðugu ástandi.

Main information

Dating
1100 - 1300
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2016-58-1
Dimensions
16 x 2.6 cm Lengd: 16 Breidd: 2.6 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords