Súpuskeið
1918

In preservation at
National Museum of Iceland
Stór súpuskeið úr silfri, dönsk, frá árinu 1918. Á skaftinu er eins konar stílfært snigla- eða fléttuskraut, stórgert. Á bakhlið eru tveir stimplar, annars vegar þrír turnar, sem er merki Kaupmannahafnar, og hins vegar stimpill silfurvarðarins, CFH, sem er stimpill Christian F. Heise en hann var síðasti silfurvörður í Kaupmannahöfn (1904-1932). Efst á eftanvert skaftið eru grafnir upphafsstafirnir KGS, sem er væntanlega samsetning á upphafsstöfum eigendanna, Kristjáns Sigtryggssonar og Guðrúnar Sigurðardóttur, en þau fengu skeiðina í brúðkaupsgjöf árið 1918. Þau bjuggu þá á Norðfirði og skeiðin var gjöf frá búðarrekendum þar. Skeiðin er í mjög góðu ástandi og virðist vera mjög lítið notuð.
Main information
Dating
1918
Material
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2013-93
Dimensions
40.5 x 8.5 cm
Lengd: 40.5 Breidd: 8.5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Súpuskeið





