Main information
Gender / Year of Submittee
Karl (1928)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-122
Place
Sveitarfélag 1950: Svalbarðshreppur N-Þing.
Questions / Answers
Allar spurningar
(..1..)
Þegar ég fæddist átti ég eina ömmu Guðrúnu Guðmundu Þorláksdóttir í Laxárdal í Þistilfirði. Amma var fædd á Garði í Þistilfirði. Foreldrar hennar voru Þorlákur Einarsson og Hólmfríður Pétursdóttir sem bjuggu þá á Garði. Á mínum uppvaxtarárum voru samgöngur erfiðar og fóru menn þá eingöngu gangandi eða ríðandi á hestum milli bæja. Foreldrar mínir bjuggu á Svalbarði.
En annarra í Laxárdal og milli þessara bæja eru á milli 15 og tuttugu kílómetrar. Amma Guðrún guðmunda var föðuramma mín. Vegna þess hvað langt var á milli bæjanna voru samskiptin lítil, samkomulag var þó alltaf gott.Amma var gift Stefáni afa mínum en hann dó ungur og giftist hún þá Ólafi Þórarinssyni bróður Stefáns og áttu þau mörg börn. Ég átti því engan afa á lífi.
Svalbarð er kirkjustaður. Þau komu oft í heimsókn þegar messurnar voru Ólafur og amma, og stönsuðu þá oft tvo til þrjá daga. En það var ekki messað nema á stórhátíðum og einstöku sinnum þar fyrir utan. Amma færði okkur þá oft sokka og vettlinga sem hún hafði prjónað sjálf því ekki sat hún auðum höndum. Hún skrifaðist á við systur sínar sem fluttu til Ameríku, en því miður mun bréfum sem hún fékk til baka öllum hafa verið brennt að henni látinni, en hún lést 26 mai 1957.Hún var fædd 22 desember 1868 og var því komin undir nírætt.
Ég man fyrst eftir ömmu minni þegar ég átti 5 ára afmæli. Pabbi fór á gangnafund í byrjun September austur á Holt sem er næsti bær við Laxárdal og tók mig þá með sér og ég varð eftir hjá ömmu fram yfir afmælið.Amma bakaði afmæliskringlu á gamalli kolaeldavél í gamlahúsinu.Þá var nýlega byggt steinhús(1930) er gamlibærinn stóð uppi að mestu og var innangengt. Ég sniglaðist í kringum hana og ég man að hún var afar góð við mig. Amma var vel gefin og tók þátt í félagsstörfum eftir aðstæðum og stjórnaði sínu heimili af mikilli festu.Ég held að hún hafi haft talsverð áhrif á bonda sinn með ró og festu. Þeirra sambúð þó alltaf góð. Ég held að ég verði að láta hér staðar numið með þessar minningar um ömmu mína blessuð sé minning hennar.
(..2..)

Questionnaire
Record type
Keywords