Frásögn, skrifleg

09.03.2015
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1955)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-3
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Questions / Answers
Allar spurningar
Þetta er Móðuramma mín.
Ég átti því láni að fagna að eiga ömmu sem alltaf var til staðar mín fyrstu 13 ár.
Hún var fædd í Holtunum 9.feb.1906 og lést í des.1969.
Hún var alrdei rík af peningum, en öllu öðru.Hún eignaðist sinn daumaprins 1929 og bjó með honum alla tíð.
Hún vann ekki úti eftir að hún eignaðist börnin sín.Var áður eitthvað á saumastofu.Veit lítið meir um það.
Hún eignaðist 4 börn.sú yngsta kom 11 árum á eftir þeirri næst á undan.
Hún var handlagin og var oft fengin til að laga föt fyrir fólk , og dúkkur sem biluðu,þá var hún besti læknirinn.
Hún bjó sín búskaparár í verkamannabústöðunum við Hringbraut.Átti þar góðar vinkonur sem líka voru ömmur.
Hún átti ekki sjö dagana sæla þegar kom að heilsufari barnanna.Mamma mín veiktist 11 ára út frá sprungnum botnlanga og fékk svo berklana ofaní það.Og önnur fékk barnaveikina og staðnaði í þroska.Og hún var alla tíð í foreldrahúsum.
Hún átti einn bróður sem kom reglulega í heimsókn til hennar.
Hún var yndislegasta manneskja sem ég hef kinnst á lífsleiðinni af öllum öðrum ólöstuðm.
Hún var alltaf í hagkaupssloppum fram eftir degi og klæddi sig svo í kjóla fyrir miðdagskaffið.
Elska minnunguna um hana Jósifínu ömmu.
 
Sendi þér línu um föðurömmu nk. þriðjudag.kv [1] 
 
Já ,þá er það föðuramman.
 
Hún var fædd 1882 á 17.júní á Fagurhólsmýri. [2] 
Hún var dóttir hreppsstjórans,  sem þá var meira en almúginn. Hún var ein  af 7 systkynum.
Hún lærði til ljósmóður og í þá daga var ferðast um á hestum og konur í söðlum.Ferðin tók næstum viku og það kostaði pabba hennar 17 kr. Að kaupa gistingu og veitingar á þessari leið.
Það var svolítið um skipsströnd í Öræfum og afi minn slasaðist við að bjarga einu strandi og þar kynnast þau. Hann kom frá Djúpavogi að vinna við þetta.
Amma eltir hann á Djúpavog og var ljósmóðir hér til “1954” Hún var 42, ára þegar hún eignast sitt fyrsta barn.Sem var stúlka og hún eignaðist 3 stráka  næstu 3 ár á eftir. Hún varð langamma 84 ára gömul. Vorið “55”datt hún illa og mjaðmagrindar brotnaði og það tók ½ mánuð að senda hana með skipi til Reykjavíkur. Og það mátti enginn snerta við henni fyrr en landlæknir gat komið að sprauta hana og komið  henni frá borði.Sú hefur fengið að líða blessunin.
Pabbi sagði mér að oft var mamma hanns frá heimilinu í heila viku og eitt sinn í heilann mánuð vegan ferða sinna í sveitir og þá spilaði veðrið oft inní hvað hún var lengi að heiman. Hún bjó 2 km frá Djúpavogi og kom ekki út á Djúpavog nema einusinni þegar hún eignaðis eitt ömmubarnið “58” Hún var ánægð heima við kolaeldavélina sína .Átti alltaf eitthvað með kaffinu.
Hún lést 12.sept.1976 þá 94 ára gömul.Eitthvað er til af sendibréfum sem hún skrifaði systkynum sínum en ekki var hún að nýta sé símann og tala við þau.´’Eg var nefnilega mikið innan um fólkið hennar og leyddi oft hugan að því hvað það væri gaman að koma henni í sveitina sína.’Eg var í sveit á Kvískerjum þar bjó elsta systir hennar.En hún var alveg orðin rúmliggjandi . Ég er rosalega vel ættuð báðum megin frá. Vona að allir hafi átt eins frábærar ömmur og ég.
Kveðja [3] 
 
Questionnaire
Keywords
Keyword: Frásögn, skrifleg
Keyword:
Amma