Frásögn, skrifleg

09.03.2015
In preservation at
National Museum of Iceland

Main information

Gender / Year of Submittee
Kona (1929)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-19
Place
Núverandi sveitarfélag: Þingeyjarsveit, Þingeyjarsveit
Questions / Answers
Allar spurningar
FRÁSAGNIR UM ÖMMUR
Spurningaskrá 121
2015
 
Afskiptalítil amma
 
            Þegar móðir mín þurfti að fara frá Húsavík til Reykjavíkur með yngri systur mína til lækninga var ég send til föðurömmu minnar á Þóroddsstað í Kinn til sumardvalar. Þetta var held ég sumarið 1935 og ég var fimm ára gömul.
 Amma mín, Kristbjörg Einarsdóttir fæddist 1868 að Björgum í Kinn. Hún giftist Friðgeiri Kristjánssyni á Finnsstöðum. Þau bjuggu lengst af sínum búskap á Þóroddsstað þar sem þau áttu heima til æviloka. Afiminndó 1934 og amma var því nýlega orðin ekkja þegar ég kem þarna til hennar.
            Ég dvaldi svo öll sumur þarna hjá henni til 10 ára aldurs og svaf fyrstu árin fyrir ofan hana í útdregnu hjónarúmi.
Amma var nokkuð stórvaxin á þeirrar tíðar  mælikvarða, nokkuð stórskorin í andliti, svipurinn stillilegur, augun skær og falleg. Hún var afskaplega afskiptalítil við mig finnst mér nú, talaði lítið við mig og lagði mér engar lífsreglur. Ekkert man ég eftir háttatíma eða svefnstund á kvöldin. Á morgnana man ég að ég klæddi mig ein þarna í herberginu og vissi að amma var komin á fætur löngu á undan mér.
Tvíbýli var þarna á bænum og ég eyddi mestum hluta dagsins í fylgd frændsystkina minna sem voru tveimur og fjórum árum eldri en ég. Ekki man ég til að mér væru fengin nokkur sérstök verk að vinna en ég tók þátt í að snúa heyinu, raka dreifar og gefa hænsnunum.
Ekki held ég að ég hafi mikið fylgst með því hvað amma hafði fyrir stafni á daginn. Hún rak sitt  heimili en ógiftur sonur hennar bjó með henni. Ég man þó vel  að á vissum tíma dags fór hún að gefa sínum hænum sem hún hafði í sértökum kofa sunnan við túngirðinguna. Þarna voru lyngivaxnar þúfur og amma kom með bláber í fötu heim úr þessum ferðum.
Amma klæddist alltaf dragsíðum pilsum úr bómull eða lérefti og treyjum úr sama efni. Ég man hana ekki í peysum eða golftreyjum. Þegar hún fór út úr húsi var hún með fannhvítan skýluklút úr lérefti.Til spari klæddist hún upphlut með silfurmyllum.
Ég man ömmu sitjandi í „djúpa“ stólnum sem hún fékk á sjötugsafmælinu, haldandi á bók um Viktoríru drottningu sem hún hlakkaði mjög til að lesa.
Þessi skortur á samræðum við ömmu var vegna þess að hún heyrði mjög illa og seinustu árin varð maður að kalla inn í eyrað á henni til hún heyrði.
Hjá ömmu leið mér óumræðilega vel, ég var örugg og ánægð með lífið.
Amma dó þegar ég hafði lokið 5. bekk í Menntaskólanum á Akureyri. Síðustu skilaboðin sem ég fékk frá henni voru: „Ekki láta stelpuna (vissa bekkjarsystur) komast upp fyrir þig á prófinu“. 
 
Amman sem ég hitti aldrei.
 
Ég ber nafn móðurömmu minnar [1] Árnadóttur sem var látin áður en ég fæddist. Ég saknaði þess óskaplega sem krakki að  hafa ekki kynnst henni og gleypti í mig hvert orð sem ég heyrði um hana sagt. Þau voru oftast á þá leið að hún hefði verið framúrskarandi húsmóðir og með eindæmum stillt og dul. „Anna var alltaf eins“ heyrði ég sagt og einnig „Anna í Túnsbergi var svo mikil dama“. Hún þótti vel ritfær og varðveist hefur eftir hana frásögn hennar af brúðkaupi foreldra minna sem fram fór á Þóroddsstað í Kinn 1927.
Questionnaire
Keywords
Keyword: Frásögn, skrifleg
Keyword:
Amma