Main information
Gender / Year of Submittee
Karl (1966)
Dating
Day sent: 09.03.2015
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2015-1-4
Questions / Answers
Allar spurningar
[1]
Amma mín, Vilborg Sigfúsdóttir fæddist 1916 á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu. Hún ólst upp á Gröf í Eiðaþinghá en bjó lengi á Fáskrúðsfirði og eftir það á Egilsstöðum.
Þegar hún var fimm ára var henni uppálagt að hugsa alfarið um hárið á sér, greiða sér og flétta á hverjum degi. Því var hótað að ef hún ekki gerði þetta svo sómi yrði að þá yrði hárið klippt stutt. Sennilega hefur amma ekki þótt hugsa nógu vel um sitt hrafnsvarta síða, þykka hár og það var klippt stutt. Upp frá því safnaði hún hári og greiddi og fléttaði daglega. Alla daga var hún með tvíofnar fléttur um höfuðið. Þegar hún var komin vel á sextugsaldur klippti hún flétturnar af og var eftir það með stutt hár.
Vilborg Sigfúsdóttir lést 2005
kveðja, [2]

Questionnaire
Record type
Keywords