Hefill

In preservation at
Borgarnes Museum
Stutthefill með koparplötu undir. Smíðaður af Þorsteini Árnasyni frá Hofsstöðum í Hálsasveit.  Munur úr Munasafni Kristjáns Runólfssonar sem keypt var af Byggðasafni Skagfirðinga. Gefandi ti Munasafns K.R. var Sigríður K. Skarphéðinsdóttir frá Gili í Borgarsveit í Skagafirði (Fögrukinn 21 Hafnarfirði), en gefandi til Byggðasafns Borgarfjarðar er Byggðasafn Skagfirðinga (2014). Þorsteinn var fæddur 1833 og lést 1912. Svo er sagt um hann í Byggðum Borgarfjarðar (III, bls 45): „Smiður var Þorsteinn ágætur bæði á tré og málma, en búsýsl og skepnuhirðing lét honum ekki vel“ Einnig er svo sagt: „ Hann var stór og karlmannlegur, svipmikill, djarfur, greindur og bar höfuðið hátt, hver sem í hlut átti.“

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 9906
Record type
Collection
Undirskrá: Byggðasafn Borgarfjarðar
Keywords
Keyword: Hefill
Keyword:
Stutthefill