Pétur Sigurður Sigurðsson
2.7.1928 - 15.12.1996
Roles
Alþingismaður
Place
Staður: Naustahlein 30, 210-Garðabær, Garðabær, Álftanes, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Garðabær, Garðabær
Sveitarfélag 1950: Garðahreppur
Other name
Pétur sjómaður
More information
Vefbirting:
Pétur Sigurður
F. í Keflavík 1. júlí 1928. For.: Sigurður Pétursson (f. 16. okt. 1895, d. 8. ágúst 1972) skipstjóri og útgerðarmaður þar, síðar í Reykjavík og k. h. Birna Ingibjörg Hafliðadóttir (f. 2. okt. 1899, d. 3. jan. 1986) húsmóðir.
K. 1. (11. sept. 1952) Sigríður Sveinsdóttir (f. 1. júlí 1931) húsmóðir. Þau skildu. For.: Sveinn Ingvarsson, sonur Ingvars Pálmasonar alþm., móðurbróðir Ingvars Gíslasonar alþm. og ráðherra, og k. h. Ásta Fjeldsted.
K. 2. Ásthildur Jóhannesdóttir (f. 16. febr. 1942) ræstitæknir. For.: Jóhannes Eiðsson og k. h. Guðbjörg Lilja Einarsdóttir.
Börn: Péturs og Sigríðar: Sigurður (1955), Ásta (1956), Skúli (1961), Margrét (1966). Sonur Péturs og Auðar Gísladóttur: Pétur Rafn (1958).
Synir Péturs og Láru Þorsteinsdóttur: Þorsteinn (1961), Hjálmar (1968).
Gagnfræðapróf Reykjavík 1944. Fiskimannapróf hið meira Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1949 og farmannapróf 1951. Nám í hagræðingartækni og stjórnunarstörfum hjá Iðnaðarmálastofnun Íslands í Reykjavík 1961.
Háseti, bátsmaður og stýrimaður á vélbátum, togurum og farskipum 1943— 1963, frá 1952 hjá Eimskipafélagi Íslands. Erindreki Sjálfstæðisflokksins milli þinga 1963. Forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði 1977—1992.
Kosinn í vinnutímanefnd 1961 og var formaður hennar. Formaður Sjómannadagsráðs 1962—1994, jafnframt formaður stjórnar Hrafnistu, dvalarheimilis aldraðra sjómanna, Happdrættis DAS, Laugarásbíós, Bæjarbíós í Hafnarfirði og barnaheimilisins Hraunáss í Grímsnesi til 1992. Í stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur 1960—1995. Í stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs 1963—1987, formaður frá 1983. Í miðstjórn Alþýðusambands Íslands 1972—1976. Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1968—1975. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1967—1972 og 1975—1984. Átti sæti á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1972 og 1975. Í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1978. Í Norðurlandaráði 1983—1987. Í stjórn Fiskimálasjóðs 1983—1987. Í öryggismálanefnd sjómanna 1984—1986, formaður nefndarinnar. Vann að stofnun SÁÁ og var í fyrstu stjórn þeirra samtaka. Formaður bankaráðs Landsbanka Íslands 1985—1989. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1986.
Alþm. Reykv. 1959—1978 og 1983—1987, landsk. alþm. (Reykv.) 1979—1983 (Sjálfstfl.).
1. varaforseti Sþ. 1980.
Related objects


