Jón Páll Bjarnason

6.2.1938 - 16.08.2015
Roles
Tónskáld, Gítarleikari, Tónlistarkennari
Place
Staður: Engihjalli 3, 200-Kópavogi, Kópavogsbær Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær Sveitarfélag 1950: Kópavogshreppur
Other name
Jón Páll Bjarnason Gunnarsson
More information
Vefbirting: Gítarleikari, tónskáld og tónlistarkennari, lengst af búsettur í Los Angeles í Bandaríkjunum. Síðast búsettur í Kópavogi. Jón Páll Bjarnason fæddist á Seyðisfirði 6. febrúar 1938. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Kópavogi 16. ágúst 2015. Foreldrar hans voru hjónin Anna G. Jónsdóttir Bjarnason hjúkrunarfræðingur, f. 8. nóv. 1900, d. 15. okt. 1982, og Gunnar Bjarnason, verkfræðingur og skólastjóri Vélskóla Íslands, f. 12. feb. 1901, d. 24. september 1987.  Jón Páll átti eina systur, Önnu Bjarnason, f. 7. september 1933, d. 22. apríl 1998.    Jón Páll ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann sýndi snemma hæfileika á sviði tónlistar og byrjaði í píanónámi mjög ungur og lærði einnig á selló. Hann gutlaði við trommur en síðan varð gítarinn fyrir valinu. Gítarleikur varð hans ævistarf og fylgdi honum til hinsta dags. Jón Páll var orðinn atvinnugítarleikari 17 ára gamall og lék með bestu hljómsveitum landsins fyrir dansi, fyrst hér á landi en síðan í Danmörku og Svíþjóð og um skeið lék hann með erlendum tónlistarmönnum á skemmtiferðaskipum á Karíbahafi. Hann hafði þó einkum áhuga á djasstónlist og hefur allt frá fyrstu tíð verið í fremstu röð íslenskra djassleikara. Jón Páll lauk prófi frá Loftskeytaskólanum, því foreldrar hans lögðu að honum að hann yrði að hafa einhver starfsréttindi upp á vasann önnur en tónlistina, en hann starfaði aldrei sem slíkur. Hann var í Tónlistarskólanum. Síðar á ævinni fór hann í framhaldsnám í list sinni í GIT (Guitar Institution of Technology) í Bandaríkjunum. Árin 1961 til 1964 var Jón Páll giftur Ellý Vilhjálms söngkonu, f. 28. desember 1935, d. 16. nóvember 1995, þau skildu. Barn þeirra var Hólmfríður Ásta Bjarnason, f. 19. febrúar 1962, d. 29. apríl 2004. Sonur Hólmfríðar Ástu og Guðmundar Inga Sveinssonar er Sveinn Hólmar Guðmundsson, f. 11. nóvember 1987. Eiginmaður Hólmfríðar Ástu var Kristján Helgason, f. 1. maí 1957. Árið 1970 kvæntist Jón Páll Ernu Haraldsdóttur flugfreyju, f. 25. janúar 1940, d. 15. nóvember 1978. Þau héldu heimili bæði í Svíþjóð og í Reykjavík en Erna fórst í flugslysi við Sri Lanka. Árið 1987 giftist hann Robertu Joan Ostroff rithöfundi, f. 8. desember 1940, d: 19. júní 2005. Jón og Róberta bjuggu lengst af sínum búskap í Los Angeles í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum en fluttu til Íslands árið 2000. Eftir lát Róbertu bjó Jón í Kópavogi til dauðadags. Jón Páll var í hópi bestu gítarista landsins og var meðal frumkvöðla á sviði djassins. Auk þess að taka að sér að spila við ýmis tækifæri starfaði hann við gítarkennslu við Tónlistarskóla FÍH og Tónlistarskólann á Akranesi og við kennslu í einkatímum. Hann samdi djasslög og spilaði inn á allmarga geisladiska í samvinnu við aðra tónlistarmenn. Reference: https://www.islendingabok.is/search https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1565660/?item_num=0&searchid=bd85e7f700fce2cf34ddfa99943c67e747e363d1
Related objects