Vilborg Runólfsdóttir

23.8.1884 - 28.9.1965
Roles
Húsfreyja
Place
Staður: Reynimelur 58, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Melarnir, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Seinni kona Árna Eiríkssonar kaupmanns og leikara. Lærði matreiðslu í Kaupmannahöfn. Matselja á Vesturgötu 18, Reykjavík. Vilborg Runólfsdóttir var Vestur-Skaftfellingur. Hún fæddist 23. ágúst 1884 í Ásgarði í Landbroti, dóttir hjónanna Vilborgar Ásgrímsdóttur og Runólfs Árnasonar. Árið 1889 fluttist fjölskyldan að Eintungnahálsi á Síðu, en þar lést Runólfur hausið 1897. Árið eftir fór Vilborg vestur í Mýrdal og var þar í Suður-Vík næstu sjö árin, allt til 1905, en þá flutti hún til Reykjavíkur. Árið 1910 giftist Vilborg Árna Eiríkssyni (f. 1868, d. 1917) en hann var þá ekkill með tvö börn. Vilborg og Árni eignuðust fjögur börn saman. Árni hafði verið verslunarmaður framan af ævi, en var nýlega orðinn kaupmaður þegar hér var komið, og rak verslun sem bar nafn hans í Austurstræti 6. Til að byrja með verslaði Árni aðallega með vefnaðarvöru og hreinlætisvörur, en brátt bættist við fatnaður, búsáhölf og ýmiss konar gjafavara, þar með talin leikföng, og raunar margt fleira. Engu að síður var Árni þá, og einkum síðar, miklu betur þekktur sem leikari, en hann var meðal stofnenda Leikfélags Reykjavíkur. Hann lést árið 1917, aðeins 49 ára að aldri. Eftir lát Árna lagði Vilborg rekstur fyrirtækisins í hendur verslunarstjóra, og stýrði hann því um hríð. Að lokum fór þó svo, að Verzlun Árna Eiríkssonar varð gjaldþrota sumarið 1922, en djúp efnahagskreppa reið yfir landið í lok fyrri heimsstyrjaldar og árin þar á eftir. Til að sjá sér og börnunum farboða brá Vilborg á það ráð að hefja rekstur matsölu á heimili sínu á Vesturgötu 18. Hafði hún þar fasta viðskiptavini, "kostgangara", sem svo voru nefndir. Vilborg var meistarakokkur, enda hafði hún lært nokkuð til matseldar, þegar hún vann um tíma á einhverjum besta veitingastað Kaupmannahafnar árið 1909. Matsöluna rak hún í tvo áratugi, til ársins 1942. Þá hafði hún, með dyggri hjálp Gunnars, sonar síns, komið upp sex íbúða húsi við Reynimel. Þar bjó Vilborg í einni íbúðinni upp frá því, og leigði aðra út, en í risinu hafði hún saumastofu. Þar saumaði hún m.a. barnafatnað fyrir verslun Haraldar Árnasonar, sem af mörgum var talin besta fatabúð Reykjavíkur á sinni tíð. Saumaskapur lék í höndum hennar. Vilborg lést 28. september 1965. (Upplýsingar um ævi Vilborgar fengnar frá dóttursyni hennar, Jóni Erni Bjarnasyni (f. 1950)).
Related objects