Kristín Steinsdóttir
11.3.1946
Roles
Rithöfundur
Place
Staður: Flókagata 19, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Norðurmýrin, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting:
Móðir: Arnþrúður Ingólfsdóttir f. 1916, d. 1964.
Maki: Jón G. Hálfdanarson f. 29.05.1947.
Kristín fæddist og ólst upp á Seyðisfirði. Hún er stúdent frá Menntaskólanum frá Akureyri og lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1968. Hún lauk síðar B.A. prófi í dönsku og þýsku frá Háskóla Íslands. Kristín kenndi við gagnfræðadeildRéttarholtsskóla í þrjú ár og fór svo til náms í Danmörku í dönsku og dönskum bókmenntum. Árin 1972 til 1978 var hún búsett íGöttingen í Þýskaland og árið 1978 í Noregi og flutti til Íslands árið 1979 og hefur lengst af búið á Akranesi.
Kristín kenndi við Brekkubæjarskóla og síðar við Fjölbrautaskóla Vesturlands en sneri sér alfarið að ritstörfum árið 1988. Kristín var í stjórn Rithöfundasambands Íslands árin 1993 – 2001 og formaður stjórnar Samtaka íslenskra barna- og unglingabókahöfunda (SÍUNG) árin 1999 – 2003.
Kristín hefur samið fjölda barnabóka og einnig skáldsögur fyrir fullorðna og sú nýjasta, Ljósa, hlaut meðal annarsMenningarverðlaun DV í bókmenntum og Fjöruverðlaunin 2011. Skáldsagan Á eigin vegum var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2008. Kristín hefur einnig hlotið viðurkenningar fyrir barnabækur sínar, meðal annars Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir fyrstu bók sína, Franskbrauð með sultu, og Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur og Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bókina Engill í Vesturbænum. Hún hefur einnig samið leikrit og sögur í samstarfi við systur sína,Iðunni Steinsdóttur rithöfund.
Reference:
http://is.wikipedia.org/wiki/Krist%C3%ADn_Steinsd%C3%B3ttir
Related objects


