Ingibjörg Bjarnadóttir

22.9.1926 - 21.07.2022
Roles
Bóndi, Húsfreyja
Place
Staður: Gnúpufell, Núpufell, Eyjafjarðarsveit Núverandi sveitarfélag: Eyjafjarðarsveit , Eyjafjarðarsveit Sveitarfélag 1950: Saurbæjarhreppur Eyjaf. Sveitarfélag 1950: Hrafnagilshreppur Staður: Skólatröð 2, 601-Akureyri, Eyjafjarðarsveit , Grundarþing, Ísland Staður: Lambadalur 1 og 2 Innri, Innri-Lambadalur, 471-Þingeyri, Ísafjarðarbær, Dýrafjörður, Ísland Sveitarfélag 1950: Mýrahreppur V-Ís.
More information
Vefbirting: Ingibjörg Bjarnadóttir var húsfreyja og bóndi í Gnúpfelli í Eyjafjarðarsveit um árabil, einnig eftir að maður hennar Daníel Pálmason hreppstjóri lést. (Sbr. Morgunblaðið 22.09. 2016).  Hún hefur látið af búrekstri nú og dvalið í íbúð að Hrafnagili í vetur (2018-2019). Ingibjörg er fædd og uppalin í Innri-Lambadal í Dýrafirði 22.09. 1926, stundaði nám við Héraðsskólann á Núpi, Gagnfræðaskólann á Akureyri og síðar Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Flutti til veikrar systur sinnar á Akureyri 1946 til þess að hjálpa henni, nokkru fyrir útskrift á Núpi, og átti ekki afturkvæmt vestur. Lauk munnlegu gagnfræðaprófi á grundveli náms síns á Núpi og öðlaðist þá rétt til að sækja um í húsmæðraskólann. Húsfreyja á Gnúpufelli frá 1950. Ingibjörg hefur verið sannkallaður “félagsmála- og bústólpi” í sinni sveit um áratuga skeið.  Halldóra J Rafnar ritstjóri á Akureyri vísaði á Ingibjörgu sem mögulegan heimildarmann ÞÞ. Reference: Tölvupóstur frá Halldóru J. Rafnar, kt. 3105474769, dagsettur 19. febr. 2019. Ingibjörg Bjarnadóttir, svör við spurningaskrá um héraðsskóla, 18. mars 2019. Ingibjörg Bjarnadóttir, munnlegar upplýsingar 26. mars 2019, símtal við sérfræðing ÞÞ.
Related objects