Grétar Lárusson
31.8.1934 - 12.11.2001
Roles
Vélstjóri
Place
Staður: Vallarflöt 3, 340-Stykkishólmi, Sveitarfélagið Stykkishólmur, Stykkishólmur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Stykkishólmur, Sveitarfélagið Stykkishólmur
Sveitarfélag 1950: Stykkishólmshreppur
More information
Vefbirting: Grétar Lárusson fæddist í Stykkishólmi
31. ágúst 1934. Hann andaðist við störf sín í Rafstöðinni í Stykkishólmi
12. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ásta Gestsdóttir húsfreyja,
f. 23. desember 1910, d. 9. júlí 1991, og Lárus Rögnvaldsson rafvirki,
f. 27. júní 1904, d. 13. apríl 1956. Þau eignuðut fjóra syni og var Grétar
þeirra elstur. Næstur Grétari kemur Rögnvaldur vélsmíðameistari, f. 8.
mars 1938, verkstjóri í Skipasmíðastöðinni Skipavík hf. í Stykkishólmi,
kvæntur Sveinlaugu Salóme Valtýsdóttur og eiga þau þrjár dætur. Þá koma
tvíburarnir Haraldur og Gylfi, f. 23. október 1946, báðir trésmíðameistarar.
Haraldur er kvæntur Auði Jóhannesdóttur bankastarfsmanni og eiga þau þrjú
börn, Gylfi er kvæntur Ólöfu Jónsdóttur skrifstofumanni og eiga þau þrjú
börn. Bræðurnir Haraldur og Gylfi eiga og starfrækja byggingafyrirtækið
Sökkul hf. í Reykjavík.
Grétar kvæntist 31. desember 1982
eftirlifandi eiginkonu sinni, Önnu Birnu Ragnarsdóttur, starfsstúlku á
St. Fransiskussjúkrahúsinu í Stykkishólmi, f. 19. júlí 1944, frá Hraunhálsi
í Helgafellssveit. Foreldrar Önnu Birnu eru Jónína Kristín Jóhannesdóttir
húsfreyja, f. 11. júlí 1923, og Ragnar Hannesson, bóndi og smiður víða
á Vesturlandi, síðast í Hraunhálsi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, f.
5. júlí 1915, d. 13. maí 1980. Börn Garðars og Önnu Birnu eru þrjú: 1)
Lárus Ragnar, f. 6. janúar 1975, 2) Svanur Már, f. 3. september 1978 og
3) Ragnheiður Kristín, f. 1. apríl 1983. Lárus Ragnar starfar í verktakafyrirtækinu
Höfuðverki Kristjáns Ragnarssonar sem móðurbróðir hans, Kristján Ragnarsson,
á og rekur. Svanur Már og Ragnheiður Kristín eru enn í skóla. (Morgunblaðið,
gagnasafn á netinu).
Reference: Morgunblaðið, gagnasafn á netinu.
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html
Related objects








