Torfhildur Þorsteinsdóttir Hólm
2.2.1845 - 14.11.1918
Roles
Skáldkona
Place
Staður: Ingólfsstræti 18, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Þingholt, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Foreldrar hennar Þorsteinn Einarsson
prestur á Kálfafellsstað í Hornafirði og Guðríður Torfadóttir frá Breiðabólsstað
í Fljótshlíð.
Frá 17-21 árs var hún í Reykjavík
að ýmsu námi og síðan í Kaupmannahöfn. Eftir að heim kom, hóf hún að segja
til ungum stúlkum. Var 1 ár í Hólanesi, síðan 1 ár á Höskuldsstöðum, 13
ár í Vesturheimi (Kanada 1877-1890) og nam þar málaraíþrótt, lagði stund
á ritstöf og hannyrðir og kenndi ungum stúlkum. Þar skrásetti hún þjóðsögur
og sagnir sem hún safnaði meðal íslenskra landnema í Kanada og löngu síðar
voru sumar þeirra gefnar út á bók. Bjó í Reykjavík eftir það. Eftir að
hún komst á efri ár fékk hún ritstyrk frá alþingi (fyrst íslenskra kvenna)
og hélt til æviloka. Hún var fyrsta íslenska konan sem skrifaði og gaf
út skáldsögur og jafnframt fyrsti íslenski rithöfundurinn sem skrifaði
sögulegar skáldsögur. Hún var brautryðjandi íslenskra kvenna á ritvellinum.
Stundaði ritstörf. Skrifaði m.a.
sögulega skáldsögu um Brynjólf Sveinsson biskup í Skálholti, Jón Arason
biskup á Hólum og um Jón biskup Vídalín. Skrifaði sögur fyrir börn og unglinga,
gaf út mánaðarrit ofl.
Eiginmaður hennar var Jakob Hólm
verslunarstjóri í Hólanesi á Skagaströnd. Þau giftu sig 1874 en Jakob lést
1875, á eins árs brúðkaupsafmæli þeirra. Þau voru barnlaus.
Torfhildur lést í spænsku veikinni
árið 1918. Síðustu æviárin bjó hún að Ingólfsstræti 18 í Reykjavík, en
það hús erfði hún eftir Ragnhildi systur sína.
Torfhildur átti kjörson, Halldór
Hólm (f. 7.3.1904, d. 1.9.1952), sem hún hafði ættleitt fáum mánuðum fyrir
andlát sitt. Hann hét Halldór Bogason og var sonur Kristínar Björnsdóttur
(og Boga Benediktssonar, f. 1865, d. 1907), sem lengi var vinnukona hjá
Torfhildi. Eftir andlát Torfhildar var Kristín skráð húsráðandi að Ingólfsstræti
18 þar sem hún var fjárhaldsmaður sonar síns, sem var einkaerfingi Torfhildar.
Það má leiða að því líkum að Torfhildur hafi ættleitt drenginn til að koma
í veg fyrir að vinkona sín og vinnukona til fjölda ára lenti á götunni
ásamt syni sínum, að Torfhildi látinni.
Related objects





