Ásgeir Lárus Jónsson
2.11.1894 - 13.04.1974
Roles
Ráðunautur
Place
Staður: Drápuhlíð 24, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Hlíðar, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting:
Verkfræðingur á Sólvallagötu 18, Reykjavík 1930. Verkfræðingur í Reykjavík 1945. Vatnsvirkjafræðingur, ráðunautur og skrifstofustjóri. Síðast búsettur í Reykjavík.
Ásgeri Lárus Jónsson, ra´ðunautur, fæddist á Þingeyrum 02.11.1894.
Foreldrar: Jón Ásgeirsson á Þingeyrum og Guðbjörg Aradóttir frá Sigríðarstöðum.
Ásgeir fór í fóstur að Sveinsstöðum í Þingi tæpra tveggja ára gamall til þeirra feðga Jóns Ólafssonar og Magnúsar sonar hans og þeirra konum.
Maki: Anna Geirsdóttir f. 14.04.1901, d. 20.01.1933.
Maki II: Ágústa Þuríður Vigfúsdóttir 01.08.1906.
Ásgeir lauk námi við Hólaskóla 1914, en las svo stærðfræði og þýsku utan skóla næstu tvö ár. Með þann undirbúining réðst hann til náms í vatnsvirkjafræði við Die Kulturbauxchule zu Lingerburg í Þýskalandi og lauk þar námi árið 1922. Vann verkfræðistörf við Flóaáveituna árin 1922-1928 og mældi jafnframt fyrir vegum um Flóa og Skeið fyrir Vegagerð ríkisins. Til Búnaðarfélags Íslands réðst hann 1. ágúst 1928 og var ráðunautur félagsins fram á vordaga 1972. Störf hans voru margþætt, en þessi helst: mælingar fyrir áveitum, stíflugerðir fyrir þurrkun lands til ræktunar og mælingar fyrir vatnsveitum bæði í sveitum og kauptúnum. Eru störf hans hið besta dæmi þeirrar gjörbyltingar sem orðið hefur í jarðrætkarmálum vorum. Hann hóf störf sín við stórfelldustu áveituframkvæmdir þjóðarinnar og lauk þeim, þegar landþurrkun til túnræktar hafði gjörsigrað allar áveituáætlanir. En sú bylting hafði í reynd engin áhrif á störf Ásgeirs. Þau einkenndust alla hans löngu starfsævi af dyggð, afburða glöggskyggni og vandvirkni, sem aldrei brást. Ásgeir var til margs kvaddur um dagana. Hann sat í Tilraunaráði jarðræktar 1942-1970, skrifstofustjóri Búnaðarþings 1951-1972, kenndi landmælingar við framhaldsdeild Hvanneyrarskóla annað hvert ár 1948-1960, var falið árið 1935 að ganga frá skuldaskilum bænda í Flóa við ríkisjsóð vegna Flóaáveitunnar. Skipaður í ítölunefnd árið 1955 til að gera ítölu í afrétt og heimalönd Hvammshrepps í Vestur-Skaftafellssýslu. Er fjarri því að hér séu öll störf hands talin.
Störf: Vatnsvirkjafræðingur, verkfræðingur við Flóaáveituna, mældi fyrir vegum í Flóa, ráðunautur Búnaðarfél. Ísl.
Reference:
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 28522 - 31552.
https://www.islendingabok.is/search
https://timarit.is/page/5029943#page/n199/mode/2up
Related objects

