Gísli Guðmundsson

2.12.1903 - 04.11.1973
Roles
Alþingismaður
Place
Staður: Hóll, Langanesbyggð, Langanes, Ísland Núverandi sveitarfélag: Langanesbyggð, Langanesbyggð Sveitarfélag 1950: Sauðaneshreppur
Other name
Ólafur Gísli Guðmundsson
More information
Vefbirting: Gísli Guðmundsson (Ólafur Gísli) F. á Hóli á Langanesi 2. des. 1903, d. 4. nóv. 1973. For.: Guðmundur Gunnarsson (f. 10. maí 1873, d. 6. sept. 1942) bóndi þar og k. h. Kristín Gísladóttir (f. 20. júní 1875, d. 10. mars 1955) húsmóðir. K. (28. sept. 1935) Margrét Árnadóttir (f. 28. sept. 1904, d. 2. nóv. 1988) húsmóðir. For.: Árni Davíðsson og k. h. Arnbjörg Jóhannesdóttir. Dóttir: Kristín (1936). Stúdentspróf MR 1926. Stundaði nám í íslenskum fræðum við Háskóla Íslands 1926—1929. Námsferð um Þýskaland, Sviss og Ítalíu sumarið 1929. Hafði á höndum kennslu barna og unglinga á Langanesi öðru hverju 1921— 1925. Stundakennari við Samvinnuskólann 1928—1929 og 1930—1934, skólastjóri í forföllum 1930—1931. Innanþingsskrifari við Alþingi 1928—1929. Ritstjóri í Reykjavík 1929—1940. Stundaði síðan ýmis ritstörf. Átti sæti í vinnulöggjafarnefnd 1936—1938. Í bankaráði Útvegsbankans frá 1936 til æviloka. Skip. 1937 í mþn. um arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri. Í stjórn skuldaskilasjóðs útvegsmanna 1949—1951. Endurskoðandi byggingarsjóðs kaupstaða og kauptúna 1950—1957. Í bankamálanefnd 1951—1954. Í fjárhagsráði 1952—1953. Gæslustjóri Söfnunarsjóðs 1952—1955. Í endurskoðunarnefnd laga um almannatryggingar og byggðajafnvægisnefnd 1954—1956. Í atvinnutækjanefnd 1956—1961. Forseti Rímnafélagsins 1961—1965. Alþm. N.-Þing. 1934—1945 og 1949—1959, alþm. Norðurl. e. 1959— 1973 (Framsfl.). Sagði af sér þingmennsku 1945 vegna veikinda.  
Related objects