Sölvi Sólon Íslandus Helgason

16.8.1820 - 27.11.1895
Roles
Flakkari, Myndlistarmaður, Málari
More information
Vefbirting: Sölvi Helgason er einn frægasti "flakkari" Íslandssögunnar. Hann fæddist á Fjalli í Sléttuhlíð í Skagafirði þann 16. ágúst 1820. Foreldrar hans hétu Helgi Guðmundsson og Ingiríður Gísladóttir. Faðir hans dó þegar Sölvi var ungur drengur og var honum komið í fóstur. Móðir hans dó þegar Sölvi var á unglingsaldri. Sölvi flakkaði um allt land, þrátt fyrir að það væri ekki löglegt á þeim tíma. Árið 1846 var hann dæmdur fyrir flakk og fyrir að falsa reisupassa eða vegabréf til notkunar á ferðalögum sínum. Fáum árum síðar var hann dæmdur í fangelsi í Kaupmannahöfn fyrir þjófnað og flakk. Þar var hann til ársins 1858. Sölvi flakkaði um landið allt til æviloka en hann lést 27. nóvember 1895. Sölvi eignaðist barn með Júlíönu Sveindóttur, konu sem flakkaði með honum um tíma og afkomendur hans búa bæði hér á landi sem og í Vesturheimi. Davíð Stefánsson rithöfundur skrifaði skáldsögu sem byggir á ævi Sölva sem nefnist "Sólon Íslandus". Rithöfundurinn Jón Óskar gaf svo út ævisögu Sölva ("Sölvi Helgason, listamaður á hrakningi: heimildasaga") og um hann hafa verið samdar fjöldi greina, ritgerða, söngtexta og leikrit. Exhibitions: SÉRSÝNINGAR / ONE MAN EXHIBITIONS   1995      Lónkot, Skagafirði. 1984-85 Þjóðminjasafn Íslands, Reykjavík, Sölvi Helgason 1820-1895.   SAMSÝNINGAR / GROUP EXHIBITIONS   1996     Gallerí Hornið, Reykjavík, Eftirsóttir einfarar. 1952     Listasafn Íslands, Reykjavík.   Reference: Heimildir eru m.a. fengnar af Wilkipedia, alfræðiorðabók á alnetinu: http://is.wikipedia.org/wiki/S%C3%B6lvi_Helgason   Myndir Sólon Islandus aftur á markaðnum, Vísir, 1. desember 1969. Myndir Sölva komnar út í litum, Tíminn, 2. desember 1969. Eftirprentanir mynda Sölva, Þjóðviljinn, 5. desember 1969. Landhlaupari tekinn fastur, Lesbók Morgunblaðsins, 10. nóvember 1984. „Sérfræðinga á mörgum sviðum þyrfti til að gera honum skil, N.T. 7. desember 1984. Sölvi Helgason, N.T. 9. desember 1984. Sölvi Helgason var listamaður af guðs náð, Morgunblaðið, 23. desember 1984. Vitskerðing og viturleiki, Þjóðviljinn, 1985. Sölvi Helgason, an inspired naive artist, Iceland review, no.1, 1985. Teikning eftir Sölva Helgason finnst í einkaeign, Morgunblaðið, 31. maí 1986. „Á sér bar og eftir dró óhamingju stóra”Morgunblaðið, 7. apríl 1990. Sólon Íslandus, Morgunblaðið, 7. apríl 1990. Minningarhátíð um Sölva Helgason, Morgunblaðið, 30. júní 1995. Minnisvarði um Sölva Helgason, DV, 5. júlí 1995. Eftirsóttir einfarar, Liggur í loftinu, júní/júlí 1996. Eftirsóttir einfarar á listahátíð, Dagblaðið, 14. júní 1996. Ólafur J. Engilbertsson. Eftirsóttir einfarar, Morgunblaðið, 15. júní 1996. Bragi Ásgeirsson. „Sunnudagsmálarar” Morgunblaðið, 23. júní 1996. Eftirsóttir einfarar, Listahátíð í Reykjavík, 1996. Myndir eftir Söva Helgason, Morgunblaðið, 14. janúar 1999. Fyrirlestur í Lónkoti, Morgunblaðið, 16. ágúst 2000. Sjaldséður Sólon Íslandus í sölu, Morgunblaðið, 18. desember 2004. Verk Sölva í Lónkoti, Morgunblaðið, 14. júní 2005.
Related objects