Kjartan Júlíus Helgason
21.10.1865 - 5.4.1931
Roles
Prestur
Place
Staður: Hruni, 845-Flúðum, Hrunamannahreppur, Ytrihreppur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Hrunamannahreppur, Hrunamannahreppur
Sveitarfélag 1950: Hrunamannahreppur
Sveitarfélag 1950: Hvammshreppur Dal.
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Staður: Hvammur í Dölum, 371-Búðardal, Dalabyggð, Hvammssveit, Ísland
More information
Vefbirting:
Kjartan Júlíus Helgason. Fæddur 21. október 1865. Dáinn 5. apríl 1931. Frá Birtingarholti. Stúdent í Reykjavík 1886. Lauk prófi í prestaskóla 1889. Prestur í Hvammi í Dalasýslu 1890-1905. Prófastur í Dalasýslu 1897-1905. Prestur í Hruna frá 1905; fékk lausn 1930. Prófastur í Árnessýslu 1918-26. Veitti forstöðu sparisjóðum í Dölum og í Hruna. Ritaði nokkrar greinar í tímarit og komu hinar helstu út í bókinni "Bræðramál" (Rvík 1949). Ferðaðist um byggðir Íslendinga í Vesturheimi 1919-20. Kona Kjartans var Sigríður Jóhannesdóttir (1864-1947) prófastsfrú. Börn þeirra voru Unnur (1892-1972), Elín (1894-1971), Helgi (1895-1977), Ragnheiður (1898-1903), Jóhannes (1900-1928), Guðrún (1902-1931), Ragnheiður (1906-1949) og Guðmundur (1909-1972).
Reference:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mannamyndasan 1908 - 1931 (nr.1-5235).
Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 60.
Related objects




