Hólmur
Herbúðirnar voru hugsanlega rétt norðan við Geitháls, en þar er að sjá herminjar. Þetta voru birgðageymslur.
Í dag sjást merki eftir herinn á svæðinu, í bók Þór Whitehend er hverfið merkt inn við gamla Suðurlandsvega töluvert austar , en þar eru engar minjar að sjá.
25 m SSV af veg (Suðurlandsveg, þjóðvegur nr. 1), skammt norðan við Hólm og vestan við Bakkakot. Á hól í haga."Hóllinn norðan við ána, beint móti bæ [heitir] Beitarhúsahóll." (Ö.Hólmur 1:1 og 1:2).
Hólmur er efsta býlið í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Það stendur við Hólmsá í jaðri Hólmshrauns, sunnan Suðurlandsvegar. Ekkert er vitað um upphaf byggðar þar. Jörðin hefur orðið eign Viðeyjarklausturs um 1234 en í máldagaskrá um eignir staðarins segir: „Hamvndur gaf til staðarins holm þann. er liggr j elliða am. niðr fra Vatzenda holmi.“[1] Jarðarinnar er getið í skrá um þær jarðir sem komið höfðu undir Viðeyjarklaustur síðan Páll ábóti kom til Viðeyjar: „Hólmur xxx c.“[2]
Í jarðabókinni 1703 segir og á þessa leið: „Hrauntún segja menn, að heitið hafi jörð til forna og legið í millum Hólms og Elliðavatns. Þar sjást enn nú girðingaleifar eftir og ef grannt er athugað nokkur hústófta líkindi. Túnið er eyðilagt og komið í stórgrýti og hraun. Þar segjast menn heyrt hafa að kirkjustaður hafi verið til forna, og til líkinda þeirri sögn heita enn nú í vatninu þar rjett framundan Kirkjuhólmar. Eru það munnmæli, að þegar þetta Hrauntún lagðist í eyði, hafi bærinn þaðan frá þangað færður verið, sem nú er jörðin Hólmur.“[3] Ekki verður frekar um þetta sagt en Kirkjuhólmatjörn er í landi Hólms og minnir á áðurnefnda kirkju. Við fornleifaskráningu árið 1981 kom í ljós að kirkjugarður hefur verið skammt frá núverandi bæjarhúsum á Hólmi og má ætla að á þeim slóðum hafi kirkja staðið.
Jörðin varð við siðaskiptin konungseign svo sem aðrar klausturjarðir. Í Jarðabókinni 1703 er greint frá margháttuðum kvöðum sem hvíldu á ábúandanum á Hólmi. Segir meðal annars frá því að ábúandi þurfti að fara í verslun á Eyrarbakka fyrir Bessastaðamenn og tók ferðin viku í hvert sinn. Jarðabókin greinir einnig frá því að á Hólmi sé skógur aldeilis eyddur en hrísrif orðið naumlegt. Jörðin hélst í eigu ríkisins fram til um 1960 er borgin keypti hana.[4]
Enginn búskapur er á Hólmi lengur. Bakkakot byggist frá Hólmi árið 1950 auk sumarhúsabyggðar sem er á bökkum Hólmsár og Suðurár. Túnakort er til af bæjarstæði Hólms frá 1916 og hefur því verið varpað hér á kortagrunn í LUKR. Má þar sjá skipulag svæðisins frá þeim tíma. Á stríðárunum voru braggahverfin Camp Aberdeen og birgðageymslan Geitháls Dump við Geitháls.
Á hernámstíma voru Camp Swansea og Camp Phinney norðan við Suðurlandsveginn og þar er að finna nokkra braggabotna og aðrar minjar frá þeim tíma. Um 1949 var hafin framleiðsla á steinull í einum stóra bragganum sem áður hafið verið notaður sem kvikmyndahús af setuliðinu. Efni til steinullargerðar var sótt í Rauðhóla.
[1] Íslenzkt fornbréfasafn, I. bindi, 507.
[2] Íslenzkt fornbréfasafn , III. bindi, 598.
[3] Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, III. bindi, Gullbringu- og Kjósarsýsla, 283.
[4] Páll Líndal, Reykjavík. Sögustaður við Sund, 2. bindi, 54.
Main information
Place
Staður: Hólmur, 110-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Reference
Diplomatarium Islandicum [Íslenzkt fornbréfasafn. Hér eftir D.I.], sem hefir inni að halda bréf og gjörninga, dóma og máldaga, og aðrar skrár, er snerta Ísland eða íslenzka menn, I.-XV. bindi , Hið íslenzka bókmenntafélag, Kaupmannahöfn og Reykjavík, 1857-1950.
J. Johnsen: Jarðatal á Íslandi, með brauðlýsingum, fólkstölu í hreppum og prestaköllum, ágripi úr búnaðartöflum 1835-1845, og skýrslum um sölu þjóðjarða á landinu, J. Johnsen gaf út, Kaupmannahöfn, 1847.
Museum
Explore the Collection







