Hrauntún?

1703
In preservation at
Reykjavík City Museum
Beitarhús.   18 x 6 m. (A - V). Veggir úr torfi og grjóti (hrauni), 1,5 - 2,0 m. Br og 0,2 - 0,5 m. H. Tóttin samanstendur af 2 hólfum (A og B). Dyr eru á hólfi A í V. Töluvert grjót er á gólfi. Innan vatnsvendasvæðis við Gvendarbrunna. Um 110 m A af Hrauntúnstjörn og 12 m N af polli (einum Gvendarbrunna). Um 150 m SSV af dælustöð Gvendarbrunna. . svæðið er gróið og trjágróður við rústina Hrauntún bæjarstæði býli: Jarðabókinni 1703 er Hrauntún síðasti bærinn tilnefndur í Gullbringusýslu (bls. 283-284). Þar segir m.a.: "Hrauntún segja menn að heitið hafi jörð til forna og legið millum Hólms og Elliðavatns. Þar sjást enn nú girðingarleifar eftir og ef grannt er athugað nokkur húsatófta líkindi. Túnið er eyðilagt og komið í stórgrýti og hraun. Þar segjast menn heyrt hafa að kirkjustaður hafi til forna verið, og til líkinda þeirri sögn heita enn nú í vatninu þar rjett framundan Kirkjuhólmar. Eru munnmæli, að þegar þetta Hrauntún lagðist í eyði, hafi bærinn þaðan frá þangað færður verið, sem nú er jörðin Hólmur, og ætla menn að Hólmur hafi fyrr byggður verið, so nú megi þessa jörð Hólm kalla Hrauntúns stað uppbygða verið hafa. Segja so allir á þessum samfundi þeir eð til leggja, að ómögulegt sje þetta hið forna Hrauntún aftur að byggja." "Suðaustan við Hrauntúnstjörn er Réttarklif, og þar rétt hjá var hin gamla hjáleiga Hrauntún, en hún er nefnd í Jarðabókum... ." (Ö.Hólmur 3).

Main information

Title
Proper noun: Hrauntún?
Dating
Age: 1703
Object-related numbers
Johnsen nr.: 213-23 "Museumnumber b": 181149-23 projectnumber: 3456 Museumnumber a: R-8
Dimensions
Lengd: 18 Breidd: 6
Place
Fornleifaskráning: Staður: Hólmur, 110-Reykjavík, Reykjavíkurborg
References
Bjarni F. Einarsson 1995. Fornleifaskrá Reykjavíkur, Karl E. Norðdahl, bóndi í Hólmi. Jarðabók ÁrnaMagnússonar og Páls Vídalíns. 3. bindi. Gullbringu- og Kjósarsýsla, bls. 283. Athugasemdir og viðbætur Karls Norðdahl við örnefnaskrá, skráðar af Guðlaugi R.Guðmundssyni. (Ö.Hólmur 3).

Place of origin

64°5'10.8"N 21°44'2.4"W