Ný verk í safneign Listasafns Íslands 2025

Árlega bætast ný verk í safneign Listasafns Íslands, bæði keypt verk og gjafir og eru að jafnaði keypt á milli 20 og 30 verk á ári. Keypt verk eru um 20% safneignarinnar og gjafir um 80%. Við Listasafn Íslands starfar Innkaupanefnd skipuð af ráðherra til þriggja ára í senn sem ákveður kaup listaverka til safnsins og fjallar um gjafir sem safninu eru boðnar. Við val listaverka ber nefndinni meðal annars að fara eftir listrænu gildi þeirra og hafa í huga hvað safnið á eftir sama höfund auk þess sem leitast skal við að safnkosturinn endurspegli sem best strauma og stefnur í íslenskri og alþjóðlegri myndlist á hverjum tíma. Listasafn Íslands er eign íslenska ríkisins og er höfuðsafn á sviði myndlistar.  Hér má finna upplýsingar um þau verk sem hafa bæst við safneign Listasafns Íslands árið 2025, bæði innkaup og gjafir sem hafa verið þegnar.  
Objects
75
Related Objects