Hópmynd, óskilgreinanleg

In preservation at
National Museum of Iceland
Myndaspjald. Ljósmyndir, 29 að tölu, festar á spjald og það sett í umgjörð, með gleri fyrir og pappabaki; umgjörðin gyllt og 2,8 að breidd. Myndirnar allar, nema ein (af Finni biskupi Jónssyni, sem er að spjaldstærð 14,7 x 12,5), með "visit"-stærð. Þær eru nær allar gerðar eftir eldri myndum, prentmyndum og ljósmyndum, og munu frummyndir þessara mynda og þeirra til áður á safninu. Myndirnar eru í 5 röðum. Í 1. röð: Þormóður Torfason, Stefán amtmaður Thorarensen, Oddur Hjaltalín, Baldvin Einarsson, Magnús sýslumaður Stephensen í Vatnsdal og Magnús sýslumaður Ketilsson; í 2. röð: Finnur prófessor Magnússon, Guðmundur sýslumaður Ketilsson, séra Arngrímur Jónsson Vídalín, Bjarni amtmaður Þorsteinsson, Jón Thorstensen landlæknir og Bjarni Thorarensen; í 3. röð: Gísli skólakennari Magnússon, Konráð Gíslason, Finnur biskup Jónsson, Jón Eiríksson konferensráð og Sigurður sýslumaður Pjetursson; í 4. röð: séra Jón Jónsson á Grenjaðarstað, Páll amtmaður Melsted, Oddgeir Stephensen, Rasmus Kristjan Rask, Sveinn læknir Pálsson og Grímur Jónsson amtmaður; og í 5. röð: Brynjólfur Jóhannesson, lyfjasveinn í Reykjavík, cand. theol. Sæmundur Eyjólfsson (kominn seint á spjaldið, í stað Jóhanns Diðriks Meilbyes, stúdents, sbr. nr. 5465), séra Sigurður Sivertsen eldri á Útskálum, Sverrir Runólfsson steinsmiður, dr. Konrad von Maurer, prófessor í München, og Jón Ólafsson frá Svefneyjum. Myndspjald þetta, með þessum umbúnaði, er úr eigu föðurföður gefanda, Jóns Borgfirðings, bókfræðings, fyrrv. lögregluþjóns í Reykjavík. Umgjörðin er að utanmáli 58,9 x 47,1 cm.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: Mms-5458
Dimensions
9 x 6 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Classification
Keywords
Depiction: Hópmynd, óskilgreinanleg
Depiction:
Prestur
Depiction:
Prófessor
Depiction:
Sýslumaður
Names
Baldvin Einarsson;Magnús Ketilsson;Finnur Magnússon;Guðmundur Ketilsson;Arngrímur Jónsson Vídalín;Jón Thorstensen;Bjarni Thorarensen;Konráð Gíslason;Oddgeir Stephensen;Rasmus Kristjan Rask;Sveinn Pálsson;Brynjólfur Jóhannesson;Jón Ólafsson;Þormóður Torfason
References
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mannamyndasafns nr.5236-17842 [1932 - 1947].