Sýslumaður

In preservation at
National Museum of Iceland
Guðmundur sýslumaður Pétursson í Krossavík (sbr. 31). Mannamyndir Sigurðar Guðmundssonar málara, bls. 22-23: ... Úrklippa, brjóstmynd, 5 x 3.6 cm, límd á móleitt spjald, 12.7 x 9 cm. Virðist þannig gerð að dregið hefur verið með blýanti ofan í daufa ljósmynd af rauðkrítarteikningu Sæmundar Hólms af Guðmundi (Mms.31, áður Þjms. 4344). Á spjaldinu undir brjóstmyndinni stendur með skrifstöfum: S.P. ... Kom til safnsins 20.9.1926, en þá gaf Daníel Daníelsson „fjórar mannamyndir teiknaðar af Sig.málara Guðmundssyni“ og er þessi talin þar á meðal. Ekki verður sagt að handbragð Sigurðar sé auðsætt á myndinni, en jafnvel þótt hann ætti þar einhverja blýantsdrætti hefur hún lítið sjálfstætt gildi. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 26.4.20119

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: Mms-4364
Place
Staður: Krossavík 1, 690-Vopnafirði, Vopnafjarðarhreppur, Vopnafjörður, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Mannamyndasafn (Mms)
Classification
Keywords
Depiction: Sýslumaður
References
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.1-5235 [1908-1931]. Halldór J. Jónsson. Mannamyndir Sigurðar Guðmundssonar málara. Sérprent úr Árbók Hins íslenzka Fornleifafélags. 1977.

Place of origin

65°43'34.3"N 14°45'3.4"W