Sveitabær

1915 - 01.01.1916
In preservation at
National Museum of Iceland
Myndin sýnir hóp fólks standandi í röð og fyrir framan fólkið krýpur karlmaður á hné og lítill strákur stendur við hlið hans. Fyrir framan hópinn liggja nokkrir stórir laxar í grasinu. Í bakgrunni er gafl á bárujárnsklæddu húsi. Meðfylgjandi texti: Tekin á vél Árna Thorsteinssonar sem tímastillti hana og hljóp til og kraup á annað kné framan við hópinn. Myndin er tekin við gaflinn á eldiviðargeymslunni í Norðtungu. Þar var geymt tað, mór, verkfæri og reiðingar. Dagveiðin úr Þverá framan við fólkið, 13 laxar. Fr.v. 1. Lóa Runólfsd., hét réttu nafni Margrét (kona Frímanns). 2. Ingibjörg Skúladóttir húsmóðir. 3. Jóhanna Rögnvaldsdóttir kona Sigurðar B. Runólfssonar (móðir Sverris). 4. Kona Björns Þórðarsonar. 5. Inga Skúladóttir kona Jörgen Hansens, 6. Eðvarð/Edvard) Runólfsson 8 dó 1919 í Edinburg), 7. Þórður Pálsson læknir í Borgarnesi, 8. Björn Þórðarson hæstaréttardómari, 9. Runólfur Runólfsson bóndi í Norðtungu. Fremst eru Sverrir Sigurðsson 7 ára og ljósmyndarinn Árni Thorsteinsson.“

Main information

Dating
1915 - 01.01.1916
Object-related numbers
Museumnumber a: Lpr "Museumnumber b": 1995-17
Dimensions
6 x 8
Place
Staður: Norðtunga, 310-Borgarnesi, Borgarbyggð
Record type
Collection
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Classification
Keywords
Depiction: Sveitabær
Depiction:
Eldiviðarskýli
Depiction:
Fólk
Depiction:
Gistihús
Depiction:
Klæðnaður
Depiction:
Laxveiði
References
Bréf frá Sverri Sigurðssyni Bakkavör 28, 170 Seltjarnarnesi.

Place of origin

64°44'7.3"N 21°24'5.8"W