Eldgos

01.01.1855
In preservation at
National Museum of Iceland
Krakatindsgosið 1878. Gerð eftir teikningu eftir Carl Baagöe, sem hann bjó til eftir frummynd skipstjórans á eimskipinu Valdimar. Guðbrandur Jónsson fyrv. ritstjóri Sunnarfara, Reykjavík: Klakatindsgosið 1878. Tréskurðarmynd, gerð eftir teikningu eftir Carl Baagöe, sem hann bjó til eftir frummynd skipstjórans á eimskipinu „Valdemar“. Gos - strókurinn mun rétt sýndur, en fjöll og jöklar eru of brattir og háir tiltölulega. Blaðst. 27,8 x 35,6 cm. Skemmd af raka og rifin. Eftir ítarskrá Halldórs J. Jónssonar: Tréstunga (xylografi), 27,8 x 33,6 cm. Stunga: „Heklas sidste Udbrud, set fra postdampskibet „Valdemar“ den ... erens Skizze tegnet af Carl Baagöe.“ Ennfr. skýringar: Hekla (4961 Fod)." "Þríhyrningr." "Tindafjallajökul." "(Eyja)fjallajökul." "Mýrdalsjökul." - Eldgosið í Krakatindi 1878. Gef.: Guðbrandur Jónsson rithöfundur 17. 09. 1924. Blaðið mikið skert. (Jumbo). Flutt í öskju. Viðgerð af Rannver Hannessyni 1989. Gamlar þjóðlífsmyndir, mynd 180: Hekla er ásamt Snæfellsjökli frægasta fjall á Íslandi og eitt af kunnustu eldfjöllum í heimi. Hún hefur gosið sjálf um það bil fimmtán sinnum, síðan land byggðist, en auk þess hafa margsinnis orðið gos í námunda við hana. Þar sem Hekla var og er tiltölulega nærri gróðursælum sveitum og gostíðni mikil hafa landspjöll af völdum hennar orðið tilfinnanlegri en gos úr flestum öðrum eldstöðvum, svo að heilar byggðir hafa stundum lagst í auðn um lengri eða skemmri tíma, Þjórsárdalur er kunnastur þeirra sveita. Hekla varð því frá upphafi harla fyrirferðarmikil í frásögnum útlendinga, enda halda margir enn, að hún sé eina eldfjallið á Íslandi og öll gos og hraun hér á landi séu henni tengd. Mikinn þátt í frægð hennar átti sú fullyrðing í mörgum Íslandslýsingum, að gígur hennar væri nánast stigagatið niður til sjálfs Helvítis og í eldgosum mætti sjá sálir fordæmdra þeytast upp og engjast í logunum og heyra ömurlega kveinstafi þeirra. Það var langtum erfiðara að skálda upp þvílíkar furðusögur um eldfjöll, sem þá voru í miðdepli heimsins eins og Vesúvíus eða Etna á Sikiley. Íslenskur bóndi á reyndar að hafa svarað þessu til, þegar danskur embættismaður spurði hann, hvort ekki væri satt, að í Heklu væri op Helvítis. „Jú að vísu, og stundum heyrum við þaðan dönsku upp talaða.“ En reyndar voru Íslendingar svo hræddir við Heklu, að þeim Eggert Ólafssyni og Bjarna Pálssyni tókst ekki að fá nokkurn mann til fylgdar, þegar þeir gengu fyrstir manna á fjallið 20.júní árið 1750. En það kann að hafa stafað af eðlilegum ótta við náttúruhamfarir fremur en makt myrkranna. Myndin á að sýna Heklugosið árið 1845, en hún er gerð tíu árum síðar og er því hugsýn eftir lýsingu sjónarvotta. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 11.3.2011)

Main information

Photographer: Carl Emil Baagøe
Dating
01.01.1855
Object-related numbers
Museumnumber a: Lpr-804
Dimensions
27.8 x 35.6
Place
Staður: Krakatindur, Rangárþing ytra
Record type
Collection
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Classification
Keywords
Depiction: Eldgos
Depiction:
Eldfjall
Depiction:
Fjall
Depiction:
Jökull
References
Árni Björnsson, Halldór J. Jónsson. Gamlar þjóðlífsmyndir. Reykjavík, 1984.