Hafís
01.01.1855

In preservation at
National Museum of Iceland
Skip í hafís.
Skip í hafíshroða. Lík nr.
70 og merkt eins. Áletrun: Et Skip í Isen under Island, tegnet af C. Baagöe.
Úrklippa, st. 18,5 x 24,3 cm.
Eftir ítarskrá Halldórs J. Jónssonar:
Tréstunga (Xylografi), 18,5 x 24,3
cm., úrklippa.
Frumm.: Carl Baagöe ( 1855 )
„ CB“U.
Stunga:
„Et skib i Isen under Island“,
tegnet af C. Baagöe, nefnd Skip í hafís í skrá MÞ.
Gef.: Ekki getið, skráð 25. 1.
1918.
Gamlar þjóðlífsmyndir, mynd
122:
Ertu
kominn landsins forni fjandi?
Fyrstur
varstu enn að sandi,
fyrr
en sigling, sól og bjargráð.
Þannig yrkir Matthías Jochumsson
um hafísinn fyrir hundrað árum, enda hafði þessi silfurfloti þá verið tíður
vágestur að ströndum landsins síðustu fimm aldirnar.
Veðurfræðingar og
sagnfræðingar hafa sýnt fram á, að meðalárshiti umhverfis Ísland hafi orðið
1 - 2 gráðum lægri á bilinu frá 13. öld og fram til síðustu aldamóta, heldur
en hann var á þjóðveldisöld og hefur verið síðustu sex til sjö áratugina.
Aukinn hafís var ein afleiðing þessa kuldaskeiðs og fyllti oft flóa
og firði 2 - 3 mánuði á ári. Hafísinn olli enn meiri kulda á landinu
en sem nam kólnun loftslagsins í heild og hleypti með því kyrkingu í grasvöxt
og annan gróður. það hafði aftur fjárfelli í för með sér. Önnur
hremming af völdum hafíssins var sú, að víða var ekki unnt að róa til fiskjar,
því að ísinn þakti öll mið. Skip með einhverja matbjörg innanborðs
komust ekkiheldur til hafnar langtímum saman. En hafísinn er oftast
ágengastur síðla vetrar og snemma vors, einmitt þegar vorskipin voru væntanleg
frá útlandinu. Margar hetjusagnir eru til um skipstjóra, sem reyndu
að brjótast gegnum ísinn til lands. Hannes Hafstein gerði slíkar
dáðir að fyrirmynd handa stórhuga þjóðarleiðtogum í kvæðinu Í hafísnum
1914 sem byrjar á þessa leið:
Hvort hefur þú vin
okkar hafísinn séð?
Hugmyndin að baki þessu
karlmannlega vináttuhjali er væntanlega sú, erfiðleikarnir efli kjark og
dug, en reyndar hafði hafís stórlega minnkað síðustu þrjá áratugina, áður
en kvæðið var ort. Í nær hálfa öld frá 1918 varð svo naumast vart
við hafís hér, og fólk var næstum hætt að reikna með honum sem vandamáli.
Mönnum brá því hastarlega, þegar þrjú hafísár komu 1965-68 og þessi
forni fjandi reyndist langt frá því eins viðráðanlegur og bjartsýnir tæknitrúmenn
höfðu haldið.
Myndin er af skipi
í ís frá árinu 1855, en óvíst hvaðan.
(Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 2.3.2011)
Main information
Photographer: Carl Emil Baagøe
Dating
01.01.1855
Object-related numbers
Museumnumber a: Lpr-71
Dimensions
18.5 x 24.3
Record type
Collection
Undirskrá: Ljós- og prentmyndasafn (Lpr)
Classification
References
Árni Björnsson, Halldór J. Jónsson.
Gamlar þjóðlífsmyndir. Reykjavík, 1984.