Kanna, sem borðbúnaður og drykkjarílát
1750 - 1850

In preservation at
National Museum of Iceland
Tinkanna, drykkjarkanna, fremur mikil. Hún fannst fyrir löngu síðan í Hvítársíðu í Borgarfirði. Könnuna átti Magnús Halldórsson (1877-1973). Hann var fæddur á Síðumúlaveggjum þar sem hann var allt þar til hann flutti á Akranes 1949. Kannan er frá honum komin í hendur ömmu og afa gefanda. Mesta hæð hennar er um 19,5 cm með loki. Kannan er löskuð, bæði lok og halda eru brotin af. Sýnilegt er að þetta hefur lengi verið brotið frá því sárin, þar sem hlutarnir hafa brotnað frá, eru núin og máð. Að auki hefur kannan beyglast lítillega eftir að hún brotnaði svo brotin falla ekki alveg saman. Kannan er að minnsta kosti frá fyrri hluta nítjándu aldar, gæti verið nokkuð eldri. Á botninum innanverðum eru tveir stimplar en þeir eru orðnir svo máðir að erfitt er að greina þá.
Main information
Dating
1750 - 1850
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2012-79
Dimensions
19.5 x 0 cm
Lengd: 19.5 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords





