Húfa, sem höfuðfat

1972
In preservation at
National Museum of Iceland
Skotthúfa, djúp, prjónuð úr mórauðum lopa (grófum) með skúfi og skúfhólki úr koparblöndu. Húfan er frá því uppúr 1970. Auður Sveinsdóttir Laxness hannaði og prjónaði skotthúfur með nýju lagi en gullhólk og voru þær seldar í Heimilisiðnaðarfélaginu um 1972 og áfram. Þær urðu vinsælar. Þessa átti Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir og notaði nokkuð mikið. Heildarlengd húfunnar er 46 cm, þar af er skúfurinn um 15 cm langur. Skúfhólkurinn er 4,9 cm langur og mjórri í þann enda sem nær er skúfinum. Ummál húfunnar er um 52 cm. Systir gefanda, Inga Lára Baldvinsdóttir, afhenti húfuna fyrir hönd systur sinnar.

Main information

Dating
1972
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2011-17
Dimensions
46 x 0 cm Lengd: 46 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords