Hnífsskaft, óþ. hlutv.

1350 - 1600
In preservation at
National Museum of Iceland
Endi af hnífsskafti, sem hefur lögun þríblaðalaufs. Lítið gat er á miðtungunni, og sitt hvoru megin við hana liggja rákir í kross út í brúnina, þar sem skaftið er brotið af. Breidd mest um 1,5 sm, þykkt um 0,5 sm. Hnífa með svipuðum skaftendum má finna í Þjóðminjasafninu. Í fundaskrám safnsins er þeim lýst sem smáhnífum með tréskafti og látúnslaufi á endanum. Sá sem er líkastur Kópavogsendanum, er Þjms. 5359 II. Hefur hann tilheyrt öðrum stærri hníf, sem talinn er enskur að þýskur að uppruna, sennilega veiðihnífur og varla eldri en frá 14. öld.Smáhnífurinn er oddbrotinn. Lengd þess sem varðveitt er, með skaftinu, er 15,6 sm, blaðsins sjálfs 8,5 sm. (Fundaskrá Þjóðminjasafnsins, 25.6.1906.) Tvö önnur lauf í Þjóðminjasafninu eru svipaðrar tegundar, Þjms. 7516 (Sama.) og Þjms. 7832, (Sama.)bæði fundir í jörðu, aldur óviss. Við uppgröft í Sandal Castle í Englandi fannst hnífsskaftsendi, svipaður þessum, þó ekki alveg eins, tímasettur á tímabilið 1485- c. 1600. (Mayers & Butler, 1978. Fig. 2 nno. 93, bls. 234.))Lausafundur úr þverlóðskurði C-D, vestan þinghústóftar. Lá grunnt. Á sama stað fundust örlítil brot af koparþynnum, fest saman með koparhnoði. Á milli þeirra er þunnt tré. Þynnan innan á er svo til öll brotin af. Þykkt í allt, tæplega 0,5 sm. Erfitt er að segja til um hvað þetta hefur verið sökum smæðar brotsins. Svæði A. K 4009. Mynd 40,1.

Main information

Dating
Age: 1350 - 1600
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1974-267-9 Museumnumber a: 4009
Dimensions
1.5 x 0.5 x 0 cm Lengd: 1.5 Breidd: 0.5 cm
Place
Staður: Kópavogsþingstaður, 201-Kópavogi, Kópavogsbær
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá_Munir Undirskrá: Fundaskrá
Classification
Keywords
References
Frumgögn rannsóknar eru varðveitt í skjalasafni Þjóðminjasafns Íslands. (Heimildasafn 1) Fundaskrár 1974 er að finna aftan við dagbækur Guðrúnar Sveinbjarnardóttur og Margrétar Hermannsdóttur.