Vesti
1929 - 1930

In preservation at
National Museum of Iceland
Prjónavesti úr rauðu ullargarni, kvenmannsvesti. Vestið mun vera frá því um 1930 og var notað við pokabuxur eins og þá voru í tísku. Við vestið var borin húfa númer Þjms. 2012-20-2. Vestið er með V-hálsmáli og gatamunstri við axlir og á brjósti. Vestið er fremur stutt, nær niður að mitti, er 42 cm sítt mælt frá öxl. Að neðanverðu er 6 cm breitt stroff. Vestið er í mjög góðu ástandi.
Eigandi vestisins og húfunnar nr. Þjms. 2012-20-1 og 2 var Sigríður Theóbaldína Júlía Guðjónsdóttir (f. 1911, d. 2001). Hún prjónaði / heklaði þau sjálf. Gefandi er dóttir hennar. Hún sendi eftirfarandi upplýsingar með gripunum:
,,Því miður veit ég ekki hverju ég get bætt við tímasetningu vestisins og kollunnar rauðu.
Út frá myndum er vestið frá ca 1929/30. Mamma var ekki mikil hannyrðakona né hafði mikla fjármuni milli handanna þegar hún var ung stúlka. Hins vegar er alveg ljóst af fjölda ljósmynda af henni og vinkonum hennar við ýmsar kringumstæður (útilegur eða bæjarrölt á sólskinsdegi) að þær voru afar glæsilega klæddar þegar tilefni var til þess og klæddar samkvæmt nýjustu tísku þess tíma. Þá hefur gilt að bjarga sér sem best mátti verða, eins og t.d. að sauma eða prjóna sjálf og hekla eins og í þessu tilviki eitthvað smart við pokabuxurnar því ekki hefur verið mögulegt að fara út í búð til að kaupa það sem hugurinn girntist.
Mamma kom úr barnmargri fjölskyldu (9 systkini alls sem komust upp þar af tvö hálfsystkin, sem öll ólust upp saman) og var oft þröng í búi. Mamma var sú fjórða í röðinni en öll systkinin lögðu til heimilisins eftir getu og þörf og þótti sjálfsagt á þeim tíma. Hún byrjaði í hárgreiðslunámi um svipað leyti og vestið er gert og hefur því hugsanlega haft eihverja fjármuni fyrir sjálfa sig. Skv.sveinsbréfi hennar hefur hún tekið sveinspróf sitt í maí 1933 að loknu 3ja ára námstíma. Þetta sett er það eina sem varðveist hefur af prjónlesi sem hún hefur gert og greinilegt af myndum að hún hefur notað þetta oft í útilegum.
Kær kveðja
Karla“
Main information
Dating
1929 - 1930
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2012-20-1
Dimensions
42 x 0 cm
Lengd: 42 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Vesti
