Mávur SH 213, Bragi

1938 - 1939
In preservation at
National Museum of Iceland
11. júní 1994 var báturinn afhentur og eftirfarandi skráð í aðfangabók: "Kjartan Magnússon, læknir, Snorrabraut 85, gaf safninu bátinn MÁV SH 213. Báturinn er 2.14 brl. að stærð, smíðaður um aldamótin 1900 og er með Engeyjarlagi. Báturinn var búinn að standa óhreyfður í nokkur ár í Jónsnesi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Báturinn er í sæmilegu ástandi og er nú í bráðabirgðageymslu í svokallaðri Venusar geymslu við Óseyrarbraut í Hafnarfirði." (Bls. 125). Kjartan G. Magnússon læknir hafði upphaflega samband við sjóminjasafnið í Hafnarfirði árið 1991og vildi þá gefa bátinn þótt afhending yrði nokkrum árum síðar. Var Kjartani sent bréf, dagsett 26. september 1991, til staðfestingar á að safnið væri reiðubúið að taka við bátnum. Þessar upplýsingar koma fram í Íslensk skip, bátar 3: Mávur SH 213 5069 Smst. og ár ókunn. Eik og fura. 2.14 brl. 24 ha. Volvo Penta vél. Eig. Kjartan G. Magnússon, Jónsnesi, Helgafellssveit, frá 24. apríl 1972. Báturinn var tekinn af skrá 15. júní 1986 en endurskráður 24. mars 1988. Þá var eigandinn skráður í Garðabæ en heimahöfn bátsins var í Jónsnesi í Helgafellssveit. Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá 1. okt. 1991. (Bls. 166). Samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun, 18. september 1998, var báturinn fyrst skráður 7. mars 1989 og tekinn af skipaskrá 1. október 1991. Skipaskrárnúmer var 5069. Nokkrum árum eftir afhendingu bátsins var reynt að afla frekari upplýsinga um hann með viðtölum við heimildamenn, þar á meðal gefanda. Það sem fram kemur hér að neðan er mikilvæg viðbót við sögu bátsins auk þess sem leiðréttar eru nokkar missagnir. Mávur hét upphaflega Bragi og var smíðaður rétt fyrir upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar, eða þar um bil, líklega um 1939. Aðalsmiður var Albert Þorvarðarson í Gróttu en honum til aðstoðar var Kristinn Ottason skipasmiður í Reykjavík. Smíðin fór fram í bátasmíðastöð Kristins og Péturs Ottasona í Reykjavík, neðst á Brunnstíg. Alltaf var talið að báturinn væri með Engeyjarlagi. Bragi var byggður sem mótorbátur en segl ætíð mikið notuð. Albert átti bátinn meðan hann lifði og hafði fyrst og fremst til fiskiróðra frá Gróttu auk ýmissa ferða. Til dæmis fór Albert á hverju vori í viku til 10 daga að heimsækja vini og kunningja uppi á Mýrum. Bragi var alltaf hvítur og grænn á lit, eins og nú, segir Páll Guðmundsson sem sá Braga í fyrsta skipti um 1950. Skipt var um eitt til tvö borð í bátnum um 1960 og hjálpaði Páll til við viðgerðina. Bragi var ætíð óskráður að sögn Páls. Kjartan G. Magnússon læknir, Hrísmóum 1, Garðabæ, keypti bátinn af erfingjum Alberts Þorvarðarsonar í Gróttu árið 1972. Hann bar þá nafnið Bragi og hafði síðast verið í notkun 1970, en Albert drukknaði 12. júlí það ár. Hann hét fullu nafni Jón Albert. Kjartan gaf bátnum heitið Mávur. Notaði hann bátinn frá jörð sinni, Jónsnesi í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, frá 1973 uns hann var tekinn af skipaskrá og gefinn Sjóminjasafni Íslands 1994. Segir Kjartan að Mávur hafi verið í fullri notkun fram á síðasta dag. Skipasmíðastöð Kristjáns Guðmundssonar í Stykkishólmi setti nýjan kjöl og framstefni í Máv um 1979. Ennfremur skipti hann um eitthvað af böndum, þó ekki mörg. Þetta er eina viðgerðin sem Kjartan segist hafa látið framkvæma á bátnum. Kjartan notaði Máv við grásleppuveiðar, æðarvarp, lundatekju, selveiði, sem samgöngutæki og við alla flutninga til og frá Jónsnesi. Enginn bílvegur er þangað. Kjartan segir að sami litur sé á bátnum og þegar hann var keyptur, hvítur skrokkur með grænum slettilista og borðstokk. Kjartan lýsir Mávi sem happafleytu. Segir að hann sé gott sjóskip og skríði mjög vel. Páll Guðmundsson segir að Kristján Guðmundsson, skipasmíðameistari í Stykkishólmi, hafi sett sporöskjulaga upphækkun í bátinn, sem er í honum nú. Páll vann hjá Siglingastofnun og kom oft í Stykkishólm, segist hann hafa séð þetta þar. Hann kveðst einnig hafa verið viðstaddur þegar Kjartan Magnúson læknir tók við bátnum. Kjartan Magnússon segir að það sé ekki rétt sem kemur fram í skýrslu Jóns H. Allanssonar frá 1995 að Mávur hafi staðið "óhreyfður í nokkur ár í Jónsnesi". Báturinn hafi verið notaður í öll þau ár sem hann var í eigu Kjartans, "bæði  mikið og vel". Hitt geti hins vegar staðist að Mávur hafi ekki verið skoðaður í nokkur ár. Braga hefur verið ruglað saman við Baldur í seinni tíð, en hann var smíðaður um aldamótin 1900 eða í síðasta lagi rétt fyrir 1914. Það er sennilega skýringin á því að Mávur (Bragi) var um skeið talinn smíðaður um aldamótin 1900. Baldur var stór sexæringur í eigu Alberts Þorvarðarsonar sem seldi hann til Ólafsvíkur eftir að Bragi var fullsmíðaður. Albert reri á Baldri frá Kálfshamarsvík. Til er ljósmynd af Braga sem tekin er um 1950 í Gróttu. Báturinn var tekinn á land í eins konar dráttarbraut og oft settur í hús yfir veturinn. Sést dráttarbrautin á myndinni en við hlið bátsins stendur Albert Þorvarðarson. Safnið fékk myndina lánaða til eftirtöku og telur Páll Guðmundsson líklegt að hún sé tekin af Öddu Ólafsdóttur. Hún bjó áður í Oddgeirsbæ, Framnesvegi 6, Reykjavík, og tók mikið að myndum. Adda fluttist til Bandaríkjanna 1945 og giftist þar. Aftan á frummyndinni stendur þetta: G.H. PALSSON, 117 DIMMOCK ST. QUINCY 69, MASS. Safnið fékk einnig lánaða mynd af sexæringnum Baldri til eftirtöku. Nafn bátsins hefur verið skrifað á kópíuna fyrir mörgum árum. Tekur hún af allan vafa um uppruna Braga / Mávs þar sem Baldur er með öðru lagi, t.d. er stefnið hringlotað. Báðar myndirnar eru í möppu sem merkt er Mávi SH 213. Þess má geta að Páll Guðmundsson segist hafa farið nokkrar ferðir á Baldri með Albert Þorvarðarsyni. Frásagnarþáttur um Albert Þorvarðarson birtist í bók Gylfa Gröndal, Ógleymanlegir menn (Rv. 1977), með heitinu: Og Þórbergur hefndi sín á öllu nesinu. Albert Þorvaldsson, vitavörður í Gróttu, segir draugasögur - meðan stöðugt fellur að. Önnur frásögn um Albert birtist í bókinni Á förnum vegi eftir Loft Guðmundsson (Rv. 1966) með heitinu: Ekki er rótt að eiga nótt, rabbað við Albert vitavörð í Gróttu.

Main information

Title
Proper noun: Mávur SH 213, Bragi
Dating
1938 - 1939
Object-related numbers
Museumnumber a: Sms "Museumnumber b": 1994-32
Dimensions
815 x 190 cm Lengd: 815 Breidd: 190 cm
Place
Staður: Grótta - Gróttuviti, Gróttuviti, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarnesbær, Seltjarnarnes, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Sjóminjasafn (SMS) Undirskrá: Bátaskrá
Keywords
Keyword: Bátur
References
Jón Allansson, 1995. Skýrsla. Bátar í eigu minjasafna á Íslandi og annarra en safna. Samantekt Sjóminjasafns Íslands á bátum í eigu minjasafna á Íslandi ásamt þeim gömlu bátum sem eru í eigu annarra en safna og nauðsynlegt er að varðveita, bls. 11. Ljósrit án útg. staðar. (Skýrslan var ljósrituð í nokkrum eintökum). Jón Björnsson, 1999. Íslensk skip, bátar 3, bls. 166. Reykjavík. Heimildarmaður: Georg Breiðfjörð Ólafsson, trésmiður, Silfurgötu 13, Stykkishólmi, september 1998. (Ágúst Ólafur Georgsson). Heimildamaður: Kjartan G. Magnússon, Hrísmóum 1, Garðabæ. Munnlegar upplýsingar 24. og 28. september 1998. (Ágúst Ólafur Georgsson). Heimildarmaður: Páll Guðmundsson, Ægissíðu 98, Reykjavík, síðar Lækjarsmára 6, Kópavogi. Munnlegar upplýsingar 6. og 12. október 1998, 30. júní 1999 og 13.12.2004. (Ágúst Ólafur Georgsson). Tengdamóðir Páls var systir Alberts Þorvarðarsonar í Gróttu. Páll ræddi við ýmsa aðila til þess að fá upplýsingar um Braga til viðbótar við eigin þekkingu. Heimildamenn hans eru: 1) Guðrún Haraldsdóttir frá Nýjabæ á Seltjarnarnesi, en hún ólst upp í Gróttu og er systurdóttir Alberts Þorvarðarsonar. 2) Þórður Pétursson, Tómasarhaga 51, Reykjavík, systursonur Alberts. Þessir tveir heimildamenn fullyrða að Bragi / Mávur sé ekki eldri en frá því rétt fyrir 1939. Ennfremur má nefna Guðjón Jónatansson eftirlitsmann með Gróttu, sem veitti Páli ýmsar upplýsingar um bátinn.