Altarisstjaki

1600 - 1700
In preservation at
National Museum of Iceland
Altarisstjaki, úr kopar, afar stór og skrautlegur, í endurlífgunarstíl, úr Bræðratungukirkju.  Hann er með fjórum örmum , 66,5 cm að hæð með mörgum útrennslum, þvermál rétt fyrir ofan stéttina er 5,5 cm, en gildasta útrennslið er 9,5 cm að þvermáli.  Armarnir eru festir með hökum á kringlu ofarlega á stjakanum og má taka þá úr; Kringlan er 8,8 cm að þvermáli, en frá henni og upp að kertapípunni á toppnum er standur, 9 cm að hæð.  Stjakinn mjókkar upp og er 2,8 cm að þvermáli þar sem kertapípan tekur við efst.  Stéttin er kúpt og grafin með blaðaskrauti.  Hún er 27 cm að þvermáli að neðan og 8,7 að hæð.  Armarnir eru s-lagaðir, mikið og fallega skreyttir, um 20,5 cm að lengd út frá stjakanum.  Kertapípurnar eru skrúfaðar í, undir þeim eru skálar 13,6 cm að þvermáli og 2,3 að hæð (á örmunum).  Kertapípurnar eru sem mest tunnulagaðar með smá útrennslum og dálítilli bryggju efst, þær sem sitja á örmunum, eru 9,5 cm að hæð, 4,2 að þvermáli um bumbuna og 3,4 um barma, víddin er 2,2 cm.  Kertapípan og skálin á toppnum eru nokkru stærri, skálin er 15,5 cm að þvermáli og 2,3 að hæð.  Kertapípan er 11,3 cm að hæð, 4,8 cm að þvermáli um bumbu og 4,5 um barma, vídd 2,9 cm. Kirkjur Íslands (3.bindi): Altarisstjakar tveir eins, úr kopar, [...].   Þeir eru í endurlifunarstíl, líklegast frá um miðbik 17. aldar, afarstórir og skrautlegir, fyrir fimm ljós hvor, líklegast danskir en gætu verið hollenzkir eða þýzkir.   [...] Armar eru S-laga, mjög skreyttir og festir með hökum í kringlu ofarlega á legg, grafnir með blaðskrauti og er dropskál undir kertapípum [...].   Stjakana fékk Jón konsúll Vídalín frá kirkjunni árið 1911 og lét í stakinn stjakana sem síðan voru þar lengi [...]. Altar candelabra from Bræðratunga Church, now in the National Museum.   In Renaissance style, they are of 17th century date, probably Danish rather than German or Dutch.   They are 66.5cm in height, and are the largest altar candelabra in Iceland. (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 3.2. 2011)

Main information

Dating
1600 - 1700
Object-related numbers
Museumnumber a: Víd-6
Dimensions
66.5 x 0 cm Lengd: 66.5 cm
Place
Staður: Bræðratungukirkja, Kirkjan, 806-Selfossi (Reykholt), Bláskógabyggð, Biskupstungur, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Vídalínsafn (Víd)
Keywords
Keyword: Altarisstjaki
References
Kirkjur Íslands.  3. bindi. Ritstjórar: Árni Björnsson,  Þorsteinn Gunnarsson.  Reykjavík 2002.

Place of origin

64°9'48.1"N 20°22'57.1"W