Neistasendir, t. fjarskipta

1913
In preservation at
National Museum of Iceland
Svört spóla á viðarplötu, innan í henni er önnur minni spóla. Platan stendur á svartmáluðum trégrunni. Spólan tengist tveimur koparpinnum sem eru með hvítum postulínskúlum á endunum. Postulínskúlurnar voru handföng. Með aflgjafa t.d. rafhlöðu og morse-lykli myndaðist spenna í innri spólunni sem stærri spólan svo magnaði upp, þá mynduðust neistar milli koparpinnanna. Þetta er fyrsta fjarskiptatækið sem var smíðað og notað á Íslandi. Sendirinn var reyndur með 100 m háu loftneti. Haft var samband við björgunarleiðangur í Loðmundarfirði og frönsk fiskiskip úti fyrir Seyðisfirði. Árið 1915 náði Þorsteinn sambandi við þýska stöð, franska stöð í París, enska stöð og írska. Þegar síldarleit var hafin úr flugvélinni Súlunni árið 1929 var þessi sendir fenginn að láni.

Main information

Dating
1913
Object-related numbers
Museumnumber a: Fjsk-1280
Dimensions
15 x 24 x 14 cm Lengd: 15 Breidd: 24 Hæð: 14 cm
Place
Staður: Ritsíminn á Seyðisfirði, 710-Seyðisfirði, Múlaþing
Record type
Collection
Undirskrá: Fjarskiptasafn (Fjsk)
References
Jón Ármann Jakobsson. Heimir Þorleifsson (Söguþræðir símans).