Frystivél, úr íshúsi/frystihúsi

1945
In preservation at
National Museum of Iceland
Frystivél þessi kom ný í Íshús Hafnarfjarðar árið 1945. Seinna keypti Sjólastöðin hf., Óseyrarbraut 5-7, Íshúsið og notaði vélina áfram í sömu húsakynnum. Vélin var notuð uns hún var tekin niður árið 1989 af Pétri Jónssyni. Fór beint á Þjóðminjasafn eftir það. Tvö mjög stór kasthjól eru á vélinni, yfir öðrum er hlíf, mjög stór, en við hitt hjólið er aðeins hlíf á hliðinni, sem eins og skermar það af. Vélin er máluð ljósgræn og vel útlítandi, lítilsháttar farið að detta á hana ryð og flagna af málningin. Þrír mælar allir heilir eru á vélinni. Á áföstu skilti stendur: INGERSOLL - RAND COMPRESSOR MADE IN U. S. A. SERIAL NO TYPE YEAR 78207 ES - 1 A 1945 STEAM COMP. CYL. STROKE & 10½ x 13 STEAM PRESS DISCH. PRESS R. P. M. 147 220 INGERSOL - RAND CO., NEW YORK CITY Ekki er allt tíundað hér sem á skiltinu stendur, sleppt leiðbeiningum fyrir notendur. Rafmótor sem dreif vélina er á sérstöku númeri TMS 1989:9. Hann stendur nú (03.02.1993) við hlið vélarinnar. Tveir meiðar eru undir mótor TMS 1989:10-11. Kondens (kælirinn) fylgir ekki með frystivélinni. Í stórum, merktum, trékassa undir frystipressunni eru alls konar nýir varahlutir. Pappakassi, varahlutur og einnig undir frystipressunni, er fullur af stimpilhringjum, varahlutir fyrir pressuna. Fylgihlutir skráðir sérstaklega eru TMS 1989:9-11.

Main information

Dating
1945
Object-related numbers
Museumnumber a: T "Museumnumber b": 1989-8
Dimensions
370 x 180 x 0 cm 5000 g Lengd: 370 Breidd: 180 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Tækniminjasafn (T)