Ljósakróna
1850 - 1875

In preservation at
National Museum of Iceland
Ljósakróna úr messing
með rauðri glerskál. Hefir verið með kristöllum, en þá vantar nú. Hún er
í skelstýl, eintómt blaðaskraut á ljósaliljunum, sem eru 4 tvöfaldar, ljósin
8: er þeim fest á blaðakrans, er glerskálin hvílir í, en hann hangir í
4 festum, er ganga allar upp í rós, sem kengur er í, til að hengja í ljósakrónuna.
Í glerskálina er fest sívalningi úr messing og gengur hann upp í
milli festanna og ber efst aðra svipaða rós og þá, sem er efst. Neðan við
hann, undir miðjum skálarbotninum er skrautblóm úr messing og hálfsúlumyndað
typpi, en þar í milli hefir sennilega verið eitthvað skrautgler, sem nú
vantar í. Hefir krónan verið hin glæsilegasta, er hún var óskemmd, en nú
er allur ljóminn af. Kransinn er um 25 cm. að þerm. og skálin 21 um barma
en 9 að h., 6,5 um miðju, sívalningurinn 20,2 að l. og 3 að þverm., rósin
á honum 13,2 að þverm. og rósin efst álíka: neðan í henni er lítið typpi.
Armarnir eða ljósaliljurnar eru um 20 að l. og hver festi um 60. Virð(ist)
frönsk að uppruna og frá 3. fjórðungi 19. aldar. Er úr búi Gríms Thomsens
á Bessastöðum.
Main information
Dating
1850 - 1875
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: 10440
"Museumnumber b": 1928-308
Place
Staður: Bessastaðir, Jörð, 225-Garðabæ, Garðabær
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Ljósakróna
Place of origin
64°6'22.7"N 21°59'35.3"W