Stimpill, +. hlutv.

In preservation at
National Museum of Iceland
Stimpill ríkisstjóra Íslands. Þykk koparkringla, sem á er gerður stimpill við enda öðrum megin. Er þvm. 7.5 sm, þ. um 2.1 sm, og í miðju að aftan sívalur stautur, um 2.1 sm á h. og þvm. 1 sm. Grópað skjaldarmerki Íslands á miðju flatar, h. þess liðl. 3.2 sm, en umhverfis merkið áletrun: RÍKISSTJÓRI ÍSLANDS. Fyrra orðið er ofan við, en hið síðara undir, og bæði fylgja formi kringlu. Merki og áletrun snúa öndvert. Hringgróp yzt á fleti. Lítil, kringlótt hola í stautinn frá hlið. Málmur ljósleitur, gljái á og yfirborð slétt.

Main information

Object-related numbers
Museumnumber a: 15651 "Museumnumber b": 1955-100
Dimensions
7.5 x 0 x 0 cm Lengd: 7.5 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords