Saumavél

In preservation at
National Museum of Iceland
Saumavél í kassa. a. Vélin sjálf 25 sm á h., l. um 43 sm og br. 22.3 sm. Lökkuð, grunnurinn svartur og ýmis konar skraut á, aðallega jurtaflúr, og hér gylli, grænt og rautt, en handfang, með hvítum glerungi. Platan með sveiglagi, tvennar hjarir á að aftan, en umgerð, einnig íbjúg, flái á allt í kring og ljónslappir við horn, er prýdd upphleyptu skrauti. Að neðan höfð trygillaga hlíf. Lakkhúðin víða eydd og sjá má ryðbletti. Gefandi fékk vélina að gjöf frá föðurömmu sinni árið 1913. Hún var Sigríður Blöndal Sveinbjarnardóttir Egilssonar f. 1.12.1835. b. Kassi úr furu. L. 54 sm, br. 29 og h. hans tæpl. 39.5 sm. Ein fjöl er í hliðum öllum nema að framan, en þar hurð á hjörum með skráarlæsingu, í henni umgerð úr fjórum fjölum og spjald. Kassinn geirnegldur, festur saman með járnnöglum og fjalir skeyttar saman um raufir og úrtök. Nokkuð hallar hatttrénu aftur. Settir listar, hvolfskornir, við brúnir að ofan og neðan, sneið á göflum að framan, og listar kringum reit á hurð, örlítið íholfir. Tvennar koparhjarir, festar með skrúfum að innan. Á hatttré, hliðum og ramma í hurð er brún viðarmálning, listar að ofan málaðir svartir, að neðan svartir og gulir, hurðarrámur (?) hvítur og brúnt lag á, spjald brúnbæsað og kassinn gulur innan, en bakið ómálað. Ekki eru listar við brúnir að aftan. Lag kassans skrýtið og ekki ósnoturt. Lykil vantar. Nokkuð hafa brúnir eyðzt og úr þeim kvarnazt, stúf vantar af lista við hornin að aftan, málning eydd og á eru hvítar málningarslettur og rispur. Sbr. aðfangabók.

Main information

Object-related numbers
"Museumnumber b": 1958-6
Dimensions
25 x 43 x 22.3 cm Lengd: 25 Breidd: 43 Hæð: 22.3 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Saumavél