Kirkjuhurðarhringur

1600 - 1700
In preservation at
National Museum of Iceland
Kirkjuhurðarhringur úr rauðleitum kopar, kringlóttur og 10,2 að þverm. Ferstrendur á gagnskurð og með brúnaflötum á, um 1,3 - 1,8 að þverm., meiri að breidd en þykt. Hann er með 3 hnúðum og er hinn 4. á tanganum sem hringurinn er á og er 9,7 að l. með þessum hnúð eða haus: á þeim haus er að ofan I H S með hring um, en að framan er einkennisvera Mattheusar guðspjallamanns, orðin óljós þó. Til hægri handar, milli þessa hauss og hnúðsins hægra megin er grafið M A T T H E V: S vantar. Á hnúðinn hægra megin er grafið dýr, fremri hluti þess. Á að vera einkennisvera Markúsar guðspjallamanns, ljón, en líkist meira einkennisveru Lúkasar, nauti. Hægra megin við, milli þessa hnúðs og þess sem er neðst, er grafið M A R C V S . Á neðsta hnúðnum er mannshöfuð og snýr andlitið niður, en sjer á hægri vanga. Hefði mátt vænta hjer einkennisveru Lúkasar: nafn hans er næst við : L V C A S. Á hnúðnum vinstra megin er örn, einkennisvera Jóhannesar guðspjallamanns, og loks nafn hans ofanvið: J O H A N N E: S vantar og mátti þó illa vanta hjer. Hringur þessi er að líkindum íslenzkur og frá 17. öld: hann er svipaður ýmsum öðrum kirkjuhringum, en minni og óvandaðri en þeir eru flestir. Hann er frá kirkjunni að Stað í Súgandafirði.

Main information

Dating
1600 - 1700
Object-related numbers
Museumnumber a: 8686 "Museumnumber b": 1922-235
Dimensions
10.2 x 0 cm Lengd: 10.2 cm
Place
Staður: Staður, 401-Ísafirði, Ísafjarðarbær, Súgandafjörður, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords

Place of origin

66°6'57.9"N 23°33'43.8"W