Hnakkur

In preservation at
National Museum of Iceland
Hnakkur með gömlu
lagi, l. 51,5 cm., br. um frambrík 28, um apturbrík 33 cm. Frambríkin er
með drifnum látúnsþynnum að framan og apturbríkin að aptan, og báðar eru
þær með látúnsbútum yfir. Setan er klædd bláum einskeptudúk, bárótt, með
ull innaní. Blöðkurnar ná alla leið aptur og fram, og eru jafnsíðan, 27
cm., niður frá báðum bríkum, og ganga upp veð þeim. Þær eru með leðurræmu
undir að aptan og framan, við jaðrana, nema í miðjunni að neðan. Kúlan
er af (sbr. nr. 1659, 1707 og 2095). Virkin eru úr (íslenzku ?) birki,
báðir bogar eintrjáningar. Tvö móttök í hvorri hlið hliðfjöl og eru þau
fremri í kengum, en hin negld ofaná. Göt fremst og neðst í hliðfjölunum
fyrir ístaðsólarnar, sem hafa verið á öllum þessum hnökkum undir blöðkunum,
en ekki yfir svo sem nú tíðkast. Tvær ólar eru negldar yfir virkin undir
seturna - Undirdýnu vantar undir þennan hnakk eins og alla hina, sem safnið
á, sem og undir flesta söðlana. - Sbr. ennfr. síðasta nr. og nr. 1659,
1707 og 2095.
Main information
Donor: Einar Baldvin Guðmundsson
Material
Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 1703
"Museumnumber b": 1879-11
Dimensions
51.5 x 33 cm
Lengd: 51.5 Breidd: 33 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Hnakkur



















