Líkkistuskjöldur
1819

In preservation at
National Museum of Iceland
Líkkistuskjöldur af kistu Páls Jónssonar klausturhaldara, úr silfri. Vafalaust eftir Þorgrím Tómasson, sbr. skildina Þjms. 5602 og 6254 sem eru víst eftir hann (en ekki eftir Jón Jónsson á Elliðavatni, silfursmið, sem átti ekkju Páls eins og ætlað var í fyrstu). Skjöldurinn var á útsagaðri fjöl sem fylgir að mestu og virtist Jónasi sem skjöldurinn hefði verið lagður í kistuna, ofan á brjóst líksins, en ekki settur á kistulokið. Skildinum fylgja tveri silfurnaglar. - Sjá um skjöldinn í Árbókum Espólíns.
Eftirfarandi áletrun er grafin á skjöldinn:
haf í minni
Jesum Kristum
hvör aptur er upprisinn frá daudum
og nem þú stadar, dygdelskandi madur,
vid þessar moldir.
og adgiæt
ad hér bídur, í trú öruggur, upprisu Réttlátra
Paúll Johnsson
fæddur þann 29da Marte 1737,
Hospítalshaldari í 19,
Klausturhaldari Kirkiubæar Klausturs
Vid 30 ár
og
tvisvar um tíma, settur Sÿslumadur
í Gullbríngu og Kiósar Sysslumm,
fyrst giptur Árid 1761
Valgérdi Þorgeirsdóttir
sem fra honum deidi Árid 1793,
en aptur 1794
Ragnheidi Gudmundsdóttir
nú eptir þrejandi;
hann deidi á Ellidavatni
þann 8da Febrúar 1819
og var þá 20 Afkomenda
ástríkur fadir, Afi, og Lángafi,
Verid hraustir og hugdiárfir
þér allir sem vonid á Drottinn
og
vakid fyrir því þér vitid ecki, á hvada
Stundu ydar herra mun koma.
Hiartkiærum födur hriggur setti
Páll Pálsson
Main information
Dating
1819
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 1968-412
Dimensions
26 x 15.8 cm
Lengd: 26 Breidd: 15.8 cm
Place
Staður: Gufunes, Reykjavíkurborg, Gufunes, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá
Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords
Keyword: Líkkistuskjöldur
References
Þór Magnússon. Silfur í Þjóðminjasafni. Reykjavík, 1996: 63-64.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=247493&pageId=3360624&lang=is&q=kirkjugar%F0ur%20Gufunesi%20kirkjugar%F0ur
