Bollasteinn, sem kirkjugripur

In preservation at
National Museum of Iceland
Bollasteinn úr grágrýti, nokkurn veginn ferhyndur og eru 2 hliðar þó allmjög bognar og horn sljó: ummál efst 152cm.: hæð um 22 cm. Hann er totumyndaður niður og stendur ekki lárjettur nema skorðaður sje. Í hann er höggvin kringlótt skál, um 30 cm. að þverm. efst og um 10 cm. að dýpt í miðju: fláir hún allmjög. Steinninn er allvel jafn að utan og svo sem ísnúin eða lábarinn. Skálin er og vel sljett innan. Vafasamt er til hvers bollasteinn þessi hefir verið ætlaður eða notaður, hvort heldur sem mortjer eða vatnsskál og hafi hið síðara verið, hvort hann þá hafi heldur verið veraldleg mundlaug eins og fleiri slíkir bollsteinar virðast með vissu hafa verið, eða hann hafi verið vatnssteinn fyrir vigsluvatn að kirkju: á það bendir nokkuð staður sá sem S.V. segir að hann sje frá: Steinninn er frá Kirkjubóli þar. Nú eru 4 Kirkjubólin í Önundarfirði: Sela - Kirkjuból er næst Flateyri, opt kallað Selaból, en líklega á S.V. ekki við það: öllu heldur á hann við Kirkjuból í Korpudal, fyrir innan fjarðarbotninn: hin 2 eru hinz vegar við fjörðinn, í Bjarnadal og Valþjófsdal. Sbr.nr. 1929.

Main information

Technique
Object-related numbers
Museumnumber a: 2068 "Museumnumber b": 1882-28
Dimensions
152 x 22 x 0 cm Lengd: 152 Breidd: 22 Hæð: 0 cm
Place
Staður: Kirkjuból í Korpudal, Ísafjarðarbær, Korpudalur í Önundarfirði, Ísland
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn

Place of origin

65°59'2.8"N 23°20'21.3"W