Skál

In preservation at
National Museum of Iceland
Silfurskál, forn. Er hún kringlótt í laginu og kúpt, og með stút við barm, rúmlega 38 cm að þvermáli, hæð 15 cm liðlega, en þykkt að jafnaði 1 mm. Við barma skálarinnar er kveikt breið ræma, sem sveigist inn fyrir, mjór strimill yfir samskeytum að innan, og höfð bryggja, ávöl, á brún. Stuttur og breiður stútur gengur fram við skarð, sem gert er í barma, hann með ákveiktu vari á brún, ávölu og íbjúgu til beggja enda. Þvermál á börmum innan við 3 cm, og bugðan 2,3 cm á breidd, stútur 16,9 cm á breidd, og lengd liðlega 4 cm. Sjá má þrjú för að neðanverðu á skálinni, eru tvö að framan, og eitt að aftan, fjarlægð frá barmi mest 7 cm. Hér leifar kveikingar og munu þetta samskeyti fóta. Falleg smíð. Skál þessi kynni að vera forngrísk eða fornrómversk að uppruna. All mjög beygluð og hefur núist nokkuð utan, sprungur víða og neðan við stút er gat í gegn, skör hefur losnað á einum stað, skálin með spanskgrænuhúð, og dökk mjög og gljáandi á ytri hlið. Þegar hún kom, voru á henni óhreinindi, er bentu til að hún hefði legið í hænsnastíu. Gefandi hirti hlut þennan síðastliðið sumar í rusli, sem ónafngreindur maður hafði flutt á bíl til sorpeyðingarstöðvar bæjarins að Ártúnshöfða.

Main information

Object-related numbers
"Museumnumber b": 1961-150
Dimensions
38 x 15 x 1 cm Lengd: 38 Breidd: 15 Hæð: 1 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Keywords
Keyword: Skál