Gríma

1950 - 1980
In preservation at
National Museum of Iceland
Jólasveinagríma úr einhvers konar stífðu lérefti eða grisju. Hún er löguð að andliti, er máluð á framhliðinni og með götum fyrir augu, nasir og munn. Á henni er rauð hetta úr bómullarefni sem nær alveg yfir höfuðið og gríman er bundin aftur fyrir hnakka með grannri snúru. Á hana er saumað sítt, hvítt gerviskegg. Gríman er orðin mjög beygluð vegna þess hvernig hún hefur legið í geymslu en það ætti að vera hægt að lagfæra. Annars er gríman í nokkuð góðu ástandi. Sjá einnig grímu nr. Þjms. 2006-12-3. Gefandi er Guðbjörg Snót Jónsdóttir, en allir gripirnir nr. Þjms. 2006-12 eru úr búi föður hennar, Jóns Sigurðssonar, f. 1902, d. 1984.

Main information

Dating
1950 - 1980
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2006-12-4
Dimensions
25 x 17 x 0 cm Lengd: 25 Breidd: 17 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Gríma
Depiction:
Jólasveinn