Brúðarkjóll
1964

In preservation at
National Museum of Iceland
Brúðarkjóll úr hvítu satínefni.
Hann er ermalaus, aðsniðinn í mittið og með fellingum í pilsinu. Við mittið
að framanverðu er næld rós sem er úr sama efni og kjóllinn. Kjóllinn er
renndur í bakið og fóðraður með hvítu fóðri. Gefandi er Ólafur Axelsson,
starfsmaður Minjasafns Reykjavíkur. Kjóllinn er brúðarkjóll konu hans,
Ruthar Höllu Sigurgeirsdóttur, sem lést 1. ágúst 2007. Þau giftu sig í
Neskirkju 14. nóvember árið 1964. Prestur var herra Ólafur Skúlason. Þetta
var systrabrúðkaup, því systir Ruthar, Ólöf Jóna (f. 16.9.1944) giftist
þá Jóni Sigurðssyni (f. 8.12.1941). Brúðkaupsveislan var haldin að Rauðagerði
6 í Reykjavík. Ólöf Jóna hannaði kjólinn (þær systur voru í samskonar kjólum)
en saumakona var frænka þeirra systra, Ruth Kristjánsdóttir (f. 31.8.1930).
Með kjólnum fylgir ljósrit af ljósmynd af brúðhjónunum (það er geymt í
möppu: Fylgiskjöl aðfangabókar) Þar má sjá að þær systur klæðast síðum
kjólum úr blúnduefni yfir kjólana og eru með slör. Þessir gripir fylgja
ekki kjólnum og eru væntanlega glataðir. Smávegilegir blettir eru í kjólnum
en annars er hann í mjög góðu ástandi.
Main information
Ruth Kristjánsdóttir, Attributed
Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttir, Attributed
Ruth Halla Sigurgeirsdóttir, Used by
Donor: Ólafur Axelsson
Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttir, Attributed
Ruth Halla Sigurgeirsdóttir, Used by
Donor: Ólafur Axelsson
Dating
1964
Material
Technique
Object-related numbers
"Museumnumber b": 2009-33
Dimensions
101.5 x 0 x 0 cm
Lengd: 101.5 Breidd: 0 Hæð: 0 cm
Record type
Collection
Undirskrá: Munasafn
Keywords
Keyword: Brúðarkjóll
