Kambur, f. hár
900 - 1000

In preservation at
National Museum of Iceland
Lítið brot af kambi
úr beini, með leifum af tönnum báðum megin: þær eru annars vegar stórgerðar,
en hins vegar svo smáar, að 6 af þeim taka yfir 1/4 þumlúngs: ávalir beinokar
með skoru í miðju hafa báðum megin verið negldir á miðjan kambinn, með
kopar eða bronzinöglum, til styrktar. Óvíst er í hverju dysinu þetta
brot fannst. Öll þessi dys, sem eru alls sjö að tölu,
eru fyrir norðan garð á Hafurbjarnastöðum, sem er fyrir norðan Kirkjuból
hið forna, og hafa þau verið sandkafin, en þó hafa þar opt sést fáein mannabein
blásin upp úr sandinum. Eptir útsynníngsveðrinu veturinn 1868 blésu upp
þessi dys, og fór þá búandinn á Hafurbjarnarstöðum, Ólafur Sveinsson, að
gefa þeim nákvæmari gaum, eptir tilmælum Síra Sigurðar á Útskálum: hann
hefir og útvegað mér hjá fyrnefndum bónda nákvæmari skýrslu um dysin, sem
eptir fylgir: eg reyndi að eins að komast eptir því, sem mér þókti mestu
varða, en það var ekki hægt að fá eins ítarlega skýrslu um þessi merku
dys, eins og þörf hefði verið á, nema maður hefði verið aðvaraður í tíma.
Stærsta dysið Nr. I, sem flest fannst í, var
7 álnir á lengd og 2 álnir á breidd, og sneri austur og vestur: beinin
af manninum og únglíngnum sneru eins og dysið, og lágur í vesturendanum
á því (með höfuðin í vestur): hundsbeinin voru við fæturna á þeim, og hestbeinin
í austurendanum. Vopnin lágu öll til hægri handar hvert ofan á öðru (þar
mun stóra spjótið hafa legið, Nr. 557): sverðið lá næst manninum og öxin
þar ofaná, og svo aptur þar ofaná kjaptamélin og járnhríngjan: af því sést,
að reiðtygin muni hafa verið lögð eins og til hlífðar ofan á vopnin: ketillinn
lá fjærst: þar fundust og 4 hnífkinnar, brot af hjálmi og skjaldarbólu
? Leifar af tveimur hárgreiðum, brýni, ókend tönn Nr. 642 og hríngjustokkur,
Nr. 641, og ýmislegt af nöglum, sem áður er um getið: hér og hvar allt
í kríngum beinin var mikið af ryðögnum og ryðugum trébútum, Nr. 568 (f),
sem eðlilegt er að hafi hrunið niður allt í kríng um líkin: sé það leifar
af skildinum, og hann hafi verið lagður ofan á líkin, eins og eg áður gat
til, þá hefir hann smásaman fúnað, og svo hrunið út fyrir beinin, einkum
skjaldarröndin, sem var þýngst og járnmest og með flestum nöglum í. Það
getur ekki komið til greina, að nein af þeim ryðögnum, eða ryðbútum, sem
mér hafa konið fyrir sjónir, sé eifar af hríngabrynju, því
í þeim sé eg hvergi votta fyrir neinum hríng. Aptur á móti er sú tilgáta
Ólafs bónda mjög sennileg, að þessi lík hafi verið lögð í skip eða bát,
vegna þeirra mörgu ryðagna og rónaglabrota, er þar fundust allt í
kríng. Mér virðast líka rónaglarnir of digrir, og of hroðalega smíðaðir,
til þess að þeir sé úr skildi, og þeir eru mátulega lángir til þess að
vera úr bát: stóri reknaglinn, kengurinn og hnykkti naglinn geta varla
verið úr hlífum, heldur er líklegt, að þeir sé úr bát. Þessi meining Ólafs
styrkist og af því, að hann fullyrðir, að þetta leiði, eða það stærsta,
hafi verið oddmyndað til beggja enda. Hér verður samt að athuga, að leiðið
var að eins 7 álnir á lengd og 2 á breidd: innan þeirra takmarka mundi
varla sá minnsti bátur með því lagi, sem nú er haft, geta rúmazt, en þess
ber um leið að gæta, að fornir bátar höfðu opt miklu lengri kjöl og styttri
lot, en nú er haft: hafi stefnin staðið nærri beint upp, eins og mér er
sagt að hafi áður tíðkazt á bátum Hafnamanna, þá er stærð dyssins að eg
held nóg fyrir lítinn bát. Dysið Nr. II. Það var skammt
frá hinu og sneri í landsuður: þar var öllu eins til hagað, maðurinn fyrst,
hundurinn til fóta og hesturinn svo í hinn endann: þar fannst heila höfuðskelin
Nr. 574 og spjótsoddurinn Nr. 573. Dysið Nr. III. Það
sneri hérumbil eins og það fyrnefnda: þar var að sögn Ólafs bónda hausinn
af manninum settur milli þjóa: þar var og hundur, en enginn hestur: þar
fannst spjótið Nr. 575. Dysið var 4 álnir á lengd og 2 álnir á breidd:
en hvernig endarnir á þessum 6 dysum voru lagaðir, er því miður ekki skýrt
tekið fram. Líklegt er, að þetta hafi verið verkmannsdys.
Dysið Nr. IV. Það var og með mannsbeinum og hestbeinum, og ef til
vill með hundsbeinum (?), en þar fannst ekkert annað. Dysið
Nr. V - VII. Þau voru eins, og með samskonar beinum og beinabrotum, fáeinum,
en engar höfuðskeljar sáust í þeim, og í þeim fannst ekki heldur neitt
af vopnum eða járni. - Dysið Nr. I var það einasta, sem sneri rétt austur
og vestur: utan um hvert dys var hlaðið grjóti og hellublöð lögð ofan á,
og mun svo hafa verið mokað að sandi eða þakið grassverði. Öll dysin voru
svo að kalla alveg ofanjarðar og uppblásin úr sandinum. Ólafur bóndi segist
hafa leitað svo á þessu svæði, að þar muni varla geta dulizt fleiri dys
1). Mér virðist alveg óþsrft, að fara mörgum orðum um aldur
þessara hluta, og vil að mestu láta mér nægja að vísa mönnum á það, sem
eg hefi áður sagt í fyrri skýrslunni minni um þau helztu einkenni á fornum
dysjum, sjá 27. og 49. - 50. bls. Hver sá, sem hefir séð sverð og vopn
frá 10. öld og byrjun 11. aldar, og ber þau saman við hjöltin og knappinn
aptan á þessu sverði, sem hér fannst, og ormamyndirnar á döggskónum á því,
hann getur gengið úr skugga um það, að þessir hlutir sé að minnsta kosti
svo gamlir: sama er og að segja um hárgreiðurnar og hnútagröptinn á hnífskinnunum,
það getur því ekki komið til nokkurra mála, að þetta sé dys þeirra Kristjáns
skrifara og hans fylgjara. Það liggur í augum uppi, að ef þessi maður,
sem hér var grafinn, hefði verið haldinn óbóta eða sakamaður, þá hefði
menn ekki lagt í gröf með honum slíkt dýrindis sverð, því sverð voru hér
á landi allt of dýr og heldur sjaldgæf, þó minna væri skreytt, en
þetta er: menn hefði varla heldur tímt að leggja í gröf hjá óbótamanni
meira en alvepni hans, en hér fannst auk sverðsins: spjót, hjálmur, leifar
af tveimur hnífum, leifar af skildi (?) og þar að auki öxi, sem líklega
hefir veri vopn únglíngsins, því axir voru einkum þeirra vopn. Einnig eru
hér hárgreiðurnar of vandaðar, til þess að menn hefði lagt þær í gröf hjá
manni, sem menn hefði viljað fara með eins og einskonar óbótamann, allra
sízt á 16. öld, og naumast í fornöld eptir 1000. Hefði hér verið grafnir
óbótamenn, og hundar og hestar lagðir í gröf með þeim til háðúngar, þá
hefði þeir naumast verið lagðir með svo fastri reglu við fætur líkanna,
eins í öllum dysjunum, heldur mundi þeim hafa veri fleygt reglulaust einhverstaðar
hjá þeim, eða helzt ofan á þau. Allt fyrirkomulag stóra dyssins og lag
vopnanna ber það með sér, að hér hefir verið grafinn einhver höfðingi með
syni sínum, og líkast til einhver af landnámsmönnum 2). Vopnin sýna,
að það hefir verið heldri maður: hefði hann verið kristinn og dáið meir
en fám árum eptir 1000, þá hefði engum liðizt að grafa hann svo hroðalega
eptir heiðnum sið, með hesti og hundi, kambi og katli, og öllum þeim verkfærum
og einkennum, sem heiðnir hermenn áttu jafnan að hafa með sér til Valhallar,
og sem nauðsynlegast þókti að hafa með sér í lífinu: því einmitt þessir
hlutir benda á þau fornu hermanna heilræði, sem talin eru í Sigurðarkviðu
II., 25.:
Kemðr ok þveginn
skal kænna hverr,
ok at morgni mettr:
þvíat ósýnt er
hvar at apni
kemr illt
er fyr heill að hrapa. og í Hávamálum 38:
Vápnum sínum
skal maðr velli
á feti
gánga framar:
þvíat óvíst er at vita,
nær verðr á vegum úti
geirs um þörf guma.
sbr. Sigrdrífumál, 34. Þessum heilræðum fylgdu fornmenn í lífinu,
og eins vildu þeir fylgja þeim dauðir á helveg og í Valhöll: þángað
átti að hafa allt með sér, sem hafa þurfti. Að leggja menn dauða í skip
með hundi og hesti, eins og hér virðist að hafa verið gjört, var og mjög
eðlilegur heiðinn siður: því sjálfur guðinn Baldur var brendur í skipi
og með honum hestur hans, og þaðan mun sá siður hafa uppruna sinn, enda
segir í Gylfaginníng, að Einherjar riðu dag hvern frá Valhöll til víga,
og svo heim aptur, sbr. Vafþrúðnism. 41. og formála Heimskrínglu. Líklegt
er, að menn hafi víða í Norvegi verið lagðir í skip, einkum þar sem lítið
var um hesta, en aptur á móti mun hestur hafa verið lagður í haug með flestum
frjálsum mönnum hér á landi, því hér var meira til af hestum.
En ríkir menn munu opt hafa veri heygðir bæði með skipum og hesti, að þeir
gæti hvort heldur vildi, siglt eða riðið til Valhallar. Hér virðist að
hafa veri forn grafreitur, líkur þeim hjá Kálfborgará. 1)
Sá gyllti silfur-handhríngur, sem getið er um í Baldri 1. ári Nr. 6, að
fundizt hafi fyrir mörgum árum síðan á þessu svæði, og sem var með upphleyptu
krossmarki, er eflaust af allt annari rót og milku ýngri.
2) Nafn bæjarins, sem dysin eru hjá, bendir til, að hér hafi
verið grafinn Hafur-Björn Molda-Gnúpsson, sem skygnir menn sáu, að allar
landvættir fylgdu til þíngs, en bræðrum hans til veiða og fiskjar, sbr.
Landnámu 271. bls. Þó er þetta að eins laus tilgáta.
Main information
Dating
900 - 1000
Material
Object-related numbers
Museumnumber a: 576
"Museumnumber b": 1868-165
Place
Staður: Hafurbjarnarstaðir, Suðurnesjabær
Record type
Collection
Undirskrá: Fundaskrá_Munir
Undirskrá: Fundaskrá
Keywords
Keyword: Kambur, f. hár
Place of origin
64°4'11.4"N 22°42'0.1"W